Skírnir - 01.01.1896, Blaðsíða 13
Árferði og atvinnumál. 13
undirbúin vbnduð brú yfir Blöndu, samkvæmt fjárveitingu síðasta al-
þingis.
Árferði og atvinnumál. Veðrátta var þetta ár yfirleitt ðhagstæð.
Yeturinn frá áramótum var froBthægur, en úrkoma óvenjulega mikil. Vor-
ið var óþerrasamt. Um sumarið voru rigningar tíðar lengi fram eptir
slætti. Bn um þær mundir er jarðskjálptarnir dundu yfir, brá til góð-
viðra fyrir sunnan land og veBtan, er hjeldust fram á haust, en votviðra-
eamt var þó á Austurlandi. Öndverðlega í október (2.—7.) var ofsarok
af norðri, eitthvert hið mesta að veðurhæð í manna minni; fylgdi því
feiknamikil fannkoma fyrir norðan land og austan. Upp frá því og fram
til áramótanna var fremur hrakviðrasamt, úrkoma í meira lagi, en frost-
vægð, og veðurlag mjög óstöðugt; er þetta ár talið eitthvert hið mesta
rigningaár hjer á landi.
Grasvöxtur vur víðast í lakara lagi og garðyrkja öll misheppnaðist.
Heyskapur varð með minna móti, því nýting var alstaðar slæm allan
fyrri hluta sláttarins og sumstaðar hjelst vætutíð til sláttarloka. Þar sem
mest kvað að jarðskjálptunum tók að mestu leyti fyrir heyskap um það
leyti sem tíð tók að batna þar; víða hröktust og hey í áfellinu um haust-
ið, og varð því yfirleitt heyfengurinn í minnsta lagi og auk þess víða
rneira og minna Bkommdur.
Hafís kom að Norðurlandi að áliðnum vetri (snemma í marz); varð
hann landfastur við Hornstrandir; nokkurn ís rak og inn á ísafjarðar-
djúp; en eigi hafði ísinn að þessu sinni langa dvöl nje skaðvæna hjer við
land, og rak hann allan burtu fyrri hluta vorsins.
Mskiveiðar heppnuðust mjög misjafnlega. Á Austfjörðum voru afla-
brögð í minna lagi fram eptir sumri, en þá tóku þau að aukast og urðu
góð þegar á leið; fyrir veatan var allgóður afli á opnum skipum. Hrak-
viðrin um haustið drógu hvervetna mjög úr afiabrögðum, þar sem fiskur
var annars fyrir. Á vetrarvertíðinni var góður afli í Höfnum og Grinda-
vík og austanfjalls, en hin mesta ördeyða á Paxaflóa; var það mikið eign-
að botnverpingum; hið sama varðgæsluskip, er verið hafði hjer næsta ár
áður, var hjer á vakki með Btröndum fram og hremmdi nokkur skip botn-
verpinga, er urðu fyrir sektum; þar á meðal voru 3 skip sektuð, er sigldu
nær VeBtmannaeyjum en lög leyfa, en þær sektir voru gefnar upp af Dana-
stjórn, og mæltist það misjafnt fyrir. — Landshöfðingi samdi (10. júlí)
um veiðiskap botnverpinga við enskan flotaforiugja (Goorge Atkinson), er