Skírnir - 01.01.1896, Blaðsíða 33
Búa-þáttr.
33
Búa-þáttr. — í síðasta Skírni (fyrir 1895) var miuzt iitið eitt á á-
rás Engleudiuga á Búa í Transvaal, enda þðtt öll þau tíðindi gerðust á
árinu 1896; en með því að það var eðlilega stntt og ófullkomið, en við-
burðirnir í sjálfu sér merkilegir og þýðingarmiklir og urðn á árinu 1896,
þá skal bér nokkuð gjör af þeim tiðindum segja, og það því fremr, sem
rök þeirra viðburða standa svo djúpt, að með allri vissu má fullyrða, að
þar muni von bráðara meiri tíðinda að vænta af inum sömu rökum.
Þess er þá fyrst að geta, að á 17. öld námu Hollendingar land í
Suðr-Afríku og stofnuðu þar nýlendu. Plestir afkomendr þessara hollenzku
landnámsmanna gerðust bœndr, er bjuggu búum sínum, og kölluðu þeir
sig „Boer“ eða (síðar) „Boe.rs“, og er það sama orð sem „búar“ (af „búi“
= bóndi). Mest verzlun í nýleudu þeirra drógst í hendr Engla, enda
keyptu Engiar nýlenduna af Hollendinguin á öndverðri þessari öld. Fœrð-
ist þá brátt enskt snið á margt, og undu Búar því ekki vel, því að þeir
eru menn fastheldnir við þjóðerni og fornar venjur og hœgfara að flestu
svo sem hollenzkum mönnum er títt. Þeir töluðu þá enn hollenzku, en
Englar gerðu ensku eina að lögleiddu máli í stjórn og skólum. Englar
höfðu verzlunina alla í höndum sér Og svo það lítið af iðnaði, sem nm
var að gera. Hins vegar vóru Búar allir bœudr, stunduðu kvikfjárrœkt
og jarðyrkju; þeir höfðu þá blámenn fyrir þræla og létu þá vinna flesta
stritvinnu, enda eru blámenn betr til strits fallnir en hvitir menn i þvi
loftslagi. Nú þótt Búar yndu illa yfirráðum Engla og háttsemi þeirra
allri, þá urðu þeir þó svo búið að hafa um sinn. En er Englar námu úr
lögum þrælahald (1833), þá stóðust Búar ekki mátið lengr; þótti þeim fót-
um kipt undan búnaði sínum, er þeir mættu eigi halda þræla leugr. Að
vísu bœtti stjórnin eigendum þrælanna verð þeirra að nokkru; en Búum
þótti þó hitt meira um vert, að sér hiyti að verða vinnuaflið svo miklu
dýrara framvegis, enda tvísýna á að fá blámenn til að vinna stritverk, ef
eigi væru þeir til neyddir.
Búar tóku nú því það ráð, að þeir fluttu sig burt úr landi því er
Englar töldu til eignarráða yfir. Er svo tnlið, að fullar 10 þúsundir Búa
flyttu með alt sitt skuldalið norðr yfir landamoeri og settust þ>r að í
landi, er áðr var ónumið; það var fyrir norðan Óraníu-fljót. Stofnuðu
þeir þar nýtt ríki og nefndu Óraníu, og náði það norðr að Vaal-ttjóti’
Þóttust nú góðir að hafa sitt í friði fyrir Euglendingum ; en það lánaðist
ekki lengi. Englar komu brátt þangað og settu fram þá furðanlegu kröfu,
að Óranía heyrði Englandi til, og studdu það við þá kynlegu röksemd,
Sklrnir 1896. 3