Skírnir - 01.01.1896, Blaðsíða 40
40
Bíin-þftttr.
segja sumir, að Dr. Jameson fengi hraðfrétt frá Útlendingum, að þyí er
hann hugði, um, að alt yrði tilbúið á gamlársdag, og var hann beðinn að
hraða sér. Bn þetta hraðskeyti átti Kriiger að hafa sent undir nafni Út-
lendinga til að ginna Dr. Jameson. Hversu sem það hefir nú verið, þá
lagði Jameson af stað. Skömmu eftir að hann kom inn yfir landamœri,
hitti hann herforingja af Búa liði; sá varaði hann við að balda lengra
og skoraði á hann að snúa aftr, en Dr. Jameson tðk því fjarri, kvaðst
halda skyldu til Johannesburg til liðveizlu við landa sína þar og ætla að
neyða Búa-stjórn til að veita þeim þegnrétt fullan. Erindreki Englastjórn-
ar á Góðvonarhöfða, sem er góðr maðr og réttsýnn og hafði verið dulinn
allra launráða þeirra Chamberlains, Rhodes og Dr. Jamesons, fékk vitneskju
um árásar-fyrirætlun Jamesons, og þegar ritsíminn reyndist skorinn,
svo að eigi urðn með honum skeyti send, þá sendi hann hraðboða með
járnbraut til Mafeking og þaðan ríðandi á eftir Dr. Jameson með strengi-
leg boð um að snúa aftr og rjúfa eigi frið á Búum. Þessi sendill náði
Dr. J. á miðri leið. Dr. Jamesou las bréfið, reif það sundr og neitaði að
hlýða; hélt svo áfram sinna ferða.
En af Búum er það að segja, að þeir draga saman her sinn milli
Johannesburg og Dr. Jamesons. Degar liann kom í nánd við Búaher, sendi
Kriiger tengdason sinn á fund hans sem erindsreka af sinni hendi; skor-
aði hann á Dr. Jameson að snúa þegar aftr með liði sínu, og hét honum
griðum og friði og uppgjöf allra saka fyrir hann og lið hans, ef hann
vildi leggja niðr vopn sín og hverf'a aftr. Dr. Jameson tók ekki einu
sinni kurteislega við sendiherranum, heldr tók hann fastan, fletti hann
vopnum og verjum, og sendi hann svo aftr með þau orð til Krugers, að
þeir gætu talazt við í Pretóría (höfuðborginni). Dá greiddu Búar atlögu;
það var á gamlársdag; stóð orusta fram á nýársdagsmorgun, og var bar-
izt bæði nýársdag og tvo daga ina næstu. Þá var ekki uppi standandi
nema mílli fjögur og hálft fimta hundrað manna með Dr. Jameson, og urðu
þeir að biðja sér griða. Tóku Búar þá til fanga og fengu allmikið her-
fang í hestum, múlum, byssum og og öðrum skotfoerum og vopnum. Út-
londingum féliust hendr, er þeir sáu ófarir Dr Jamesons, og varð ekkert
af uppreisn þeirra, enda vóru þúsundir af Búum undir vopnum og eigi
árennilegir.
Vitaskuld hefðu Búar haft fylsta rétt til að dœma Dr. Jameson og
menn hans tii dauða, gera fijóta fullnœgju á dóminum og hengja þá á
háa gálga sem almenna glœpamenu. Hitt er annað mál, að það hefði