Skírnir - 01.01.1896, Blaðsíða 59
Þýzkaland. 59
flokksina mæltu þar harðlega á mðti í ritum og ræðum. Við forustunni
tók þá Vm Haroourt.
Þýzkaland. Þar vðru tvær minningarhátiðar haldar á árinu. In
fyrri var haldin um land alt 18. Janúar í minning þesa, að þann dag fyrir
25 árum hófst ið ný|a þýzka keisaradœmi, er Vilhjálrai „garala" var keie-
aranafn gefið. Var þá, sem nærri má geta, mikið um dýrðir, en mörgum
þótti Vilhjálmr „ferðalangr“ bera nóg gum á afa sinn, en meta miðr en
að verðungu starf þess manns, er Þýzkaland ið nýja á meira að þakka
en nokkrum manni öðrum, merkasta stjórnmálaskörungs aldarinnar — gamla
Bismarcks. — Síðari hátíðin var haldin í Prakkafurðu við Main 10. Maí.
Þann dag fyrir 25 árum var friðr saminn með Frökkum og Þjóðverjum.
Nú var þennan dag afhjúpaðr minnisvarði yfir Vilhjálm keisara inn I.
Rússland. Rússar fengu sér á árinu íslausa höfn á Kóreu, er
Kóreu-konungr lét þeim af hendi. Br það mikilsvert fyrir Rússa að eiga
íslausar herskipahafnir við Kyrrahafið, hvað sem í skerst.
í Maí-mánuði var mikil og dýrleg hátíð haldin i Moskófu, er Rússa-
keisari var kórónaðr hinn 26. dag þess mánaðar. Hafði þangað sótt fjöldi
fólks úr öllum löndum jarðhnattarins til að sjá þá miklu dýrð og viðhöfn,
enda sagðist fregnritum mikið frá þeirri frábæru dýrð.
Hátíðahaldi þessu lauk með hryllilegu móti. Á víðum velli utan við
borgina vóru tjöld reist og þangað fluttr bjór á tunnum og munngát;
skyldi því út býta meðal lýðsins ásamt tinbikar með fangamarki keisar-
ans og bjúgnamat og brauði handa hverjum manni. Bjúgun og brauðið
skyldi nýtt vera og var því ekið út til tjalda um daginn, er útbýta
skyldi. En á völlunum var mikill troðningr, sumir segja, að miljónar-
fjórðungr manna hafi verið þar saman kominn. Bikar hver, bjúga og
brauð var í böggul bundið, og skyldi hver maðr fá einn böggul slikan.
En er vagnarnir, sem fluttu bögglana, komu út á völlinn, gerðist þröng
mikil um þá, er einkverjir á vögnunum höfðu fundið upp á því ófagnað-
ar-tiltœki að fleygja bögglum út í hópinn, en fólkið þyrptist saman um að
ná í bögglana. Er þar skemst af að segja, að þar tróðust í hel yfir 2000
manna, og enn þá fleiri hlutu örkuml og hrakningar. Sutnir segja tölu
þeirra er fyrir slysum og bana urðu, miklu meiri, en bágt reiður á að
henda, er stjórnin gerði alt til að dylja ið sanna. Keisari lét grafa alla
þá er bana biðu, á sinn kostnað, og greiða fjölskyldu hverri, er þar misti