Skírnir - 01.01.1896, Blaðsíða 15
Árferði og atvinnumál.
15
sjálfskuldarábyrgðarlán 202.400 kr., handveðslán 43.610 kr., ábyrgðarlán
sveita og bæjarfjelaga 20.100 kr. Yíxla keypti bankinn að upphæð 571.451
kr., og ávísanir er námu 72.976 kr. Við áramðtin voru útistandandi lán
frá bankanum 1.133.821 kr. Innstæðufje með sparisjóðskjörum var í bank-
anum við árslok 1.065.459 kr. Varasjóður bankans var þá 173.359 kr.,
en varasjðður fyrv. sparisjóðs Reykjavíkur 11.732 kr. Þaðan hatði verið
varið 800 kr. til styrktar íshúsi í Reykjavík. Húseign í Reykjavik var
og keypt fyrir 7000 kr. af fje sjððsins, en af varasjóði bankans voru
keyptnr þar húseignir fyrir 46.000 kr.; er gjört ráð fyrir að reist verði
innan skamms stórhýsi fyrir bankann m. fl., er standi einhversstaðar þar
sem þessar húseignir hans eru. Tekjur bankans í reikningsviðskiptum við
Landmandsbankann voru 680.087 kr., en gjöld 613.149 kr.
Sparisjóöir tveir fengu veitt, hlunnindi þau, er um ræðir i tilskipun
5. jan. 1874. Það voru sparisjóður Arnarneshrepps og sparisjóður Húsa-
vikur (nýstofnaður).
Búnaðarfjelög, er hlutu landsjóðsstyrk þetta ár, voru 99 að tölu (34
á Suðurlandi, 28 á Vesturlandi, 33 á Norðurlandi, 4 á Austurlandi). Mest
hafði verið unnið í Jarðræktarfjelagi Reykjavíkur (1833 dagsverk; styrkur
498 kr. 40 au.) og næst því í þessum fjelögum: Grímsneshrepps (1748
dagsv.; st. 475 kr. 30 a.), Vestur-Landeyinga (1549 dagsv.; st. 421 kr.
20 au.), Mosfells- og Kjalarneshrepps (1351 dagsv.; st. 367 kr. 30 au.),
Merkurbæja (1243 dagsv.; st. 338 kr.).
Mannvirkja er engra að geta sjerstaklega. íshúsum er haldið áfram
eins og vikið var á í fyrra í Pr. 1895. Mannvirkjafræðingur, Paulli að
nafni, kom hjer við land að tilhlutun Reykvíkinga, til þess að rannsaka,
hvort gjörlegt myndi að koma þar upp hafskipakví, en þvi miður komst
hann að þeirri niðurstöðu, að því fylgdi svo mikill kostnaður (hátt á 5.
milljón kr.), að slíkt væri með öllu ógjörlegt, eptir því sem efni vor og
ástæður eru.
Menntun og meuning. Embættispróíi við háskólann Iuku þessir ís-
lendingar: Björgvin Vigíússon (í lögfræði), Magnús Ásgeirsson og Þórður
Guðjolmsen (báðir í læknisfræði). Þeir fengu allir 2. einkunn. Guðfræð-
ispróf (með 1. einkunn) tók og einn námsmaður íslenskur, Þórður Þórðar-
son (læknis Tómassonar); hann hefur dvalið mestan hluta æfi sinnar í
Danmörku og numið þar skólalærdóm að öllu leyti. Nokkir íslenskir náms-
menn tóku og við háskólann tyrri hlutann af fullnaðarprófum sínum (í