Skírnir - 01.01.1896, Blaðsíða 20
20
Menntnn og menning.
•
eyjarsýslu (til Ásbyrgis og Mývatns) og hinna alkunnu merkisstaði í Ár-
nessýslu (Þingvalla, Geysis og Gullfoss); þangað fór allmikill flokkur fót-
gangandi og ljet vel yflr ferð sinni bæði náttúrufegurð og viðtökum.
Bannsóknarferðir voru nokkrar farnar, er hjer verður getið. Bryn■
jólfur Jónsson fór í erindum Fornleifafjelagsins um Yesturland (Mýra-
sýslu, Snæfellsncs- og Dala-). Daniel Brun danskur fornmoojafræðingur
fór hjer víða um land (Norðurland og Þjórsárdal) í sömu erindagjörðum;
hafði hann áður rannsakað híbýlaBkipun í hinum fornu rflstum íslend-
ingabyggðar á Grænlandí, og komst hann að þeirri niðurstöðu á ferðalagi
sínu hjer, að hflsakynni hefðu verið i fornöld hin sömu hjer og þar. Hann
flutti fyrirlestur um þetta efni, eða um rannsóknir sínar bjer á landi og
Grænlandi, á ársfundi Fornleifafjelagsins. Dr. Þorvaldur Thoroddsen fór
rannsóknarferð um nokkurn hluta Þingeyjarsýsiu, Eyjafjörð og Skaga-
fjörð, frá Skjálfand&fljóti að Blöndu og allt suður að Hofsjökli, og rann-
sakaði á þvi svæði landslag og jarðfræði. Danskur búfræðingur P. Feil-
berg ferðaðist hjer um land að tilhlutun Landbflnaðarfjelagsins danska;
átti hann einkum að kynna sjer bónaðarskóla og breytingar þær, er orðið
hata á búnaðarhögum vorum hin síðari árin. Hann hafði ferðast hjer um
land fyrir 20 árum síðan, og þótti honum nó margt breytt til bóta trá
því sem þá var; einkum bflnaðarskólunum öilum gast honum vel að og
þótti þeir á góðu framfaraskeiði.
Við forngripasafnið varð sfl breyting, að Pálmi skólakennari Pálsson
ljet af umsjón þesa, er hann hefur haft á hendi síðan Sigurður Yigfflsson
andaðist; í hans stað varð forngripavörður cand. Jón Jakobsson alþingis-
maður. Forngripasatnið telur nú yfir 4000 gripi, marga mjög merkilega;
er þar nú allt orðið vel um vandað að niðurskipun og greiðira aðgöngu
en áður, en auðvitað eru húsþrengsli þar mjög til baga, eptir því sem
safnið eykst ár frá ári.
Lœknafundur var haldinn í Reykjavík siðast í jfllí (27.—30.), og er
það hinn fyrsti almenni læknaíundur hjer á landi. Landlæknir Dr. med.
J. Jónassen var forgöngumaður fundarins og forseti hans; auk hans sóttu
12 læknar fundinn og 3 læknaskólastfldentar. Breyting á skipnn lækna-
hjeraðanna kom þar fyrst til umræðu og vildu allir fjölga þeim að mun;
hið sama hefur og verið álit sýslunefnda, er það mál hefur verið borið
undir hin síðustu misseri. Kjör lækna vildi fundurinn bæta, hækka borg-
un fyrir sjúkravitjanir og læknisráð, og gjöra öll aukalæknisdæmi að hjer-
aðslæknaembættum. Þar var rætt um stofnun landsspitala og aukna