Skírnir - 01.12.1911, Síða 27
Tnngan.
331
engum þeim ofvaxin, sem grundvallarregluna getur til-
einkað sér með fullum skilningi.
En þann varnagla vil eg samt slá, að enginn skyldi
taka orð mín svo, að eg vilji leggja það til, að tungunni
sé bylt og breytt af handahófi stefnulaust eða eins og
hverjum einum bezt þykir, hversu þekkingarsnauður og
smekklaus sem hann kann að vera, Nei, slíkt væri ill
og ósæmileg meðferð þeirrar föðurleifðar, sem oss er trúað
fyrir, og vér berum ábyrgð á bæði gagnvart foreldri voru
og afkomendum. Eg hefi einmitt lagt áherzlu á ætternið,
og sýnt fram á þá ræktarskyldu, sem á oss hvílir við það.
Eins og nýjar kynslóðir manna eru runnar af stofni
hinna eldri kynslóða, og bundnar þeim blóðböndum arf-
gengra eiginleika, eins eiga nýyrðin að renna af stofni
forntungunnar, svo sem framast má verða, og frjósemi
stofnanna ítrast leyfir.
En eins og heilbrigð og eðlileg kynblöndun manna
og dýra ekki er kynspilling, heldur kynbót, eins er og
með rétta og eðlilega kynblöndun tungnanna, án hennar
úrættast og trénast tungurnar. Og eins og hverri þjóð,
sem er á þroska og vaxtarskeiði, og á ónumdar og órækt-
aðar lendur, er styrkur og efling að góðum innflytjendum,
er semja sig að landsháttum, og blanda blóði við þjóðina,
eins er hverri tungu, sem er á þroska og vaxtarskeiði,
og á miklar andlegar og verklegar lendur ónumdar og
óræktaðar, styrkur og auðgun að góðum innflytjendum,
er 8emja sig að háttum tungunnar, og blanda við hana
blóði. Það voru einmitt slíkir innflytjendur, sem lyftu
tungu vorri á það fegurðar og fullkomnunar stig, sem
hún komst á í fornbókmentum vorum.
En eins og hver þjóð verður að verja sig gegn tnn-
flutningi siðlausra úrættinga og kryplinga, eins verður
tungan að verjast saurgun úrættinga og vanskapninga,
sem vanþekkingin og skilningsleysið ætíð leitast við að
lauma inn í daglega málið, einkum í sjóþorpum og verzl-
unarbúðum, eða i búri og eldhúsi í kaupstöðunum.
Það er auðskilið, hver háski það væri, ef úrættingar