Skírnir - 01.12.1911, Qupperneq 44
348
Listin að lengja lífið.
Reynslan er margbúin að sýna, að jafnt sjúkum sem
heilbrigðum er ekkert hollara en hreint loftið, jafnvel þó
kalt sé, og á heilsuhælum og sjúkrahúsum hefir það reynzt
þýðingarmeira en flest læknislyf. Ekki einungis tæringu
heldur margs konar aðra lungnasjúkdóma lækna menn
nú á tímum með hreinu lofti, með því að láta sjúkling-
ana hafast við undir berum himni svo að segja nætur
sem daga.
Það liggur nú í augum uppi að það sem getur lækn-
að sjúkdóma, geti einnig komið í veg fyrir þá hina sömu
sjúkdóma og er það því álit margra lækna að flestir
lungna og blóðsjúkdómar mundu detta úr sögunni ef al-
menningur kæmist upp á að færa sér i nyt hreint loftið
sem flestum stendur ókeypis til boða. — Er ekki leiðin-
legt að hugsa til þess, að fjöldi manna fer svo ofan í
gröflna, að þeir hafa aldrei á ævi sinni tekið eitt ærlegt
andartak? Eg á við, að það er svo unduralment að
menn dragi aðeins andann til hálfs. Úti í góðu veðri
eiga menn að hressa sig á því, að teiga lífsloftið inn í
yztu afkima lungnanna. Teiga það, eins og þyrstur mað-
ur tært og svalandi lindarvatn.
Gluggar eiga að vera á hjörum svo hægt sé að opna
þá. Allir eiga að venja sig á að sofa fyrir opnum glugga
frá blautu barnsbeini. Glugginn þarf ekki að vera opinn
upp á gátt, enda er erfltt að koma því fyrir þegar hvast
er og kaldur súgur er óþægilegur. En þó má geta þess að'
kaldur súgur er iniklu hollari en fúlt molluloft og það
jafnvel fyrir lungnabólgusjúkling. Bezt að glugginn sé
uppi við loft með hjarir á efri röndinni og opnist í hálfa
gátt. Þá strýkst kalt loftið að utan upp með honum inn
í stofuna og dreifir sér upp við loftið og sígur smámsam-
au niður án þess að valda súgi.
Þar sem margir koma saman, eins og í leikhúsum
og kirkjum, þarf að sjá fyrir nægri loftræstingu með loft-
háfum og öðrum tækjum. Þetta er gert erlendis og þarf
að koma hér á landi.
A sjúkrahúsum er víðast hvar í útlöndum heimtað að'