Skírnir - 01.12.1911, Qupperneq 46
350
Listin að lengja lifið.
á mis við marga heilsubót, sem hreina loftið veitti þeim
og sólskinið bakaði þeim áður. Það er ein af helztu hug-
sjónum heilsufræðinnar að gera húsakynnin svo vel úr
garði, að þau geti veitt okkur sömu hlunnindi og útivist-
in í hlýju loftslagi og nægu sólskini. Húsin þarf að
byggja svo, að sólskins geti notið sem lengst á daginn.
Svefnherbergisgluggar eiga að snúa til austurs eða suðurs
en í daglegum stofum til suðurs eða vesturs. Það er
heillavænleg uppgötvun, sem útlendur byggingarfræðing-
ur hefir gert að láta íbúðarhús leika á ási, svo hægt sé
að snúa þeim eftir veðri og sól.
Það eru ekki mörg ár síðan að kvenfólkið tók upp
þann ósið að byrgja fyrir sólarljósið með sólhlífum, og
þótti þá um tíma »simpilt« að vera móleitur eða útitek-
inn í andliti. Sem betur fer hefir þessi ósiður lagst niður
á Norðurlöndum, því þar átti hann ekki heima. Allir
mega láta sér vel sæma að verða útiteknir af sól og
veðri; móleitt hörund er hraustleikavottur. í útlöndum
eru sólböð farin að tíðkast1). Loftböð og sólböð þykja
nú engu síðri heilsubót en vatnsböð. Það voru einkum
uppgötvanir landa vors Niels Finsens, sem komu mönn-
um til að hagnýta sér hin læknandi áhrif sólargeislanna
við fleiri sjúkdóma en lúpus, og hefir reynzt vel að nota
sólböð bæði við ýmsa lungna- hjarta- hörunds- og blóð-
sjúkdóma.
Eldr er beztr
með ýta sonum
ok sólar sýn,
heilindi sitt
ef hafa náir
ok án löst at lifa,
segir í Hávamálum.
3. heilræði: Hreinlœti.
Heilbrigðis- og manndauðaskýrslur sýna mesta krank-
feldni og mannfelli í þeim löndum og þeim borgarhlutum,
‘) Sólböð eru mjög einföld. Galdurinn er ekki annar en [sá, að
klæða sig úr öllu úti á bersvæði i sóiskini og láta sólina baka sig.
Loftbað fær maður um leið.