Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1911, Page 52

Skírnir - 01.12.1911, Page 52
356 Listin að lengja lífið. Það er mjög skiljanlegt að maginn og meltingarfærin eigi því auðveldara með að hagnýta sér fæðuna sem hiin er þynnri og fingerðari. Við tygginguna blandast munnvatn- ið við matinn og verkar ekki eingöngu þynnandi heldur uppleysandi og meltandi á ýms næringarefni, sérstaklega stívelsi, sem fyrir áhrif þess breytist í sykur, en sykur- inn er mjög auðmeltur. En það er eitt sem tyggingin gerir og það er að koma öllum minstu ögnum matarins í náið samband við bragðtaugarnar í tungunni og gómn- um. Við hreyfingar neðri skoltsins, tungunnar, kinnvöðv- anna og gómsins veltist maturinn fram og aftur í munn- inum og bragðið af matnurn kemst því betur til skynjun- ar sem betur er tuggið. Þetta er ef til vill þýðingar- meira atriði en hin fyrtöldu, þó því hafi fyrst nýlega verið nákvæmur gaumur gefinn af vísindamönnum. Það er rússneski lífeðlisfræðingurinn Paulow1) og lærisveinar hans sem fyrst og bezt hafa rannsakað þetta með dýra- tilraunum og sýnt fram á, að hver sú fæða, sem framleið- ir eitthvert bragð í munninum, kemur ekki einasta munn- kirtlunum til að gefa frá sér munnvatn, heldur kemur um leið kirtlum magans til að starfa svo, að þeir framleiða einmitt þann meltingarsafa, sem fær er um að uppleysa og melta sömu fæðu. Stundum er nóg að maður sjái mat, þá kemur um leið »vatn fram í munninn« og mann langar að borða hann, en um leið og vatn kemur í munn- inn kemur líka vatn — kirtlavökvi — í magann, segir Poulow, og matarlystin vaknar og örvast. Matarlystin er með öðrum orðum bundin við starfsemi munnvatns- og magasafakirtlanna. Séu kirtlarnir orðnir þreyttir eða séu þeir veikir eða ónýtir, þá vaknar ekki framar matarlyst, og borði menn þá af gömlum vana en án lystar, þá ligg- ur maturinn ómeltur í maganum og úldnar þar, ef ekki maginn þá losar sig við hann og selur honum upp. Til- raunir þær sem Paulow gerði til að sýna þetta voru með þeim hætti sem nú skal greina. ’) Paulow þessi er heimsfrægur orðinn og fekk í fyrra Nobslsverð- launin fyrir rannsóknir sínar.

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.