Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.12.1911, Side 64

Skírnir - 01.12.1911, Side 64
368 Ur austri og vestri. hafði verið orðlaus og táralaus. En eg var karlmaður, en hún var kona. Það er annars undarlegt: Eg hefi fundið það ljósast og sárast í svefni hve þungt það er að vera einmana — eins og sá er einmana, sem fellur með vitund í hið mikia tóm samúðarleysis og örvæntingar. Einmana — það var það sem Sæunn var. Foreldrar hennar bjuggu í fjarlægu héraði; þar var hún alin upp; þar voru æskustöðvar hennar og æskuvinir. Dul sem hún var í skapi og sein til kynningar, hafði hún engra vina aflað sér í þessari sveit nema mín. Hér átti hún enga trúnaðarvini; enga að, sem hún gæti flúið til með sorgir sínar og vandkvæði hjónabandsins. Eg, sem var — eða réttara sagt hefði átt að vera — hennar eini vinur — hvað hafði eg verið henni? Eg hafði heimtað sjálfrátt og ósjálfrátt alt, sem hún hafði að gefa og eg vildi að hún hefði að gefa: innilega ást, andlega frjóvgun, likamlegan munað, heilsu, jafnvel líf. Og hvað hafði eg lagt á móti? Fals; ástarhót, sem úti voru látin sem kaupeyrir og enga rót áttu í sannri velvild og hluttekningu. — Nú veit eg það að sökin var báðumegin. Nú veit eg að báðumegin vantaði þá alúðarást, sem alt gefur hugsunarlaust um endurgjald og ein tekur til fulls yfir djúpið, sem skilur sál frá sál. Nú veit eg að ástarhótin voru kaupeyrir beggja vegna; sjálfselskan báðumegin sterkasti þáttur ástalífsins. En á þeirri stundu, er hluttekning mín vakn- aði til fulls af svefninum og færði út sjóndeildarhringinn, og fyrst á þá hliðina, sem að Sæunni vissi; þegar augu mín lukust upp og eg sá hana sundur kramda, einmana í sárustu hugarkvöl — þá lagði eg allan ofurþunga sak- arinnar á mínar eigin herðar og allan innileika sálar minn- ar í viðleitnina til yfirbótar. En það var eins og eg fálm- aði í myrkri, áttaviltur á skipbroti í reginsjó, þar sem hvergi sér til lands. Hversu sem eg lagði mig fram til að tala um fyrir Sæunni og hugga hana, þegar gráthvið- urnar yfirtyrmdu hana, þá varð það að eins til þess að gráturinu espaðist æ því meir. Þessi árangur æ ofan í

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.