Skírnir - 01.12.1911, Blaðsíða 76
880
Ætt Döllu biskupsfrúar.
systur Hrefna og Þuríður móðir Þorsteins Kuggasonartt1), en þó að
aldursmunur þeirra systra hafi hlotið að vera allmikill, virðist ekki
ástæða vera til að rengja þessa frásögn Landnámu. Það er kunnugra
en frá þurfi að segja, að oft er mikill aldursmunur systkina, og
þegar þess er gætt, að seinnl maður Þuríðar var Steinþór, bróðir
Kjartans, er átti Hrefnu, systur hennar, þá virðist það benda tii
þess, að frásögn Landnámu sé rótt, enda virðist Þorsteinn Kugga-
son, sonur Þuríðar, eigi vera miklu eldri en þau Kálfur og Hrefna
móðursystkin hans, og þyrfti því aldursmunur þeina systkina eigi að
vera mikið yfir 20 ár. Enda er óvíst, að þau hafi verið sammæðra,
því að alt er mjóg óvíst um konu Ásgeirs »æðikoIls« Önundarsonar,
Jórunn dóttir Ingimundar gamla var e k k i kona hans, þótt svo sé
sumstaðar talið2), og því heldur eigi móðir þeirra Kálfs, Hrefnu og
Þuríðar, enda er það augljóst, að dóttir landnámsmanns, sem kom
áldraður út um 890, gat eigi hafa verið móðir gjafvaxta meyjar
um 1000.
En það tel eg vafalaust, að þau Kálfur, Hrefna
og Þuríður hafi verið systkin og börn Ásgeirs
»æ ð i k o 11 s«.
En kona Asgeirs »at Ásgeirsá« var Jóruun, dóttir Ingimundar
gamla, og mun hún hafa verið fædd um 890—900, og hefir Auð-
un sonur þeirra Ásgeirs verið fæddur um 920—930, Ásgeir sonur hans
um 960 og Auðun sonur hans um 990, því að hann er nokkrum vetrum
eldri en Grettir,3) sem var fæddur um 9964). Kemur þetta vel
heim við timann, enda er það sönnu nær, að dóttir landnámsmanns
hafi verið langamma uppvaxandi kynslóðar um og eftir 1000 en
móðir5).
Þorvaldur faðir Döllu konu ísleifs biskups er talinn afabróðir
Auðunar á Auðunarstöðum6) og sonur Jórunnar Ingimundardóttur7),
>) Safn I, 377.
а) Yatnsd. 49, sbr. viðauka úr Mb. bls. 191. Fms. II, 23. Flat. I,
309 og Bisk.ættir.
*) Grt.8 47.
*) Safn I, 376.
б) Til samanburðar þessu má benda á nokkrar ættir frá landnáms-
mönnum og öðrum, er lifðu um 900, raktar niður til þeirra, er uppi voru 100
árum síðar, i ritgerð Magnúsar Stephensens i T. B. V, 152—153.
9) Hb. 58, Stb. 181. Laxd.5 140, Fms. II, 23, Flat. I, 309, og Bisk-
upaættir.
7) Hb. 58, Stb. 181, Fms. II, 23, Flat. I, 309 og svo segir t. d. B.
M. Ó. hiklaust i T. B. II, 26.