Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1913, Page 10

Skírnir - 01.12.1913, Page 10
298 Um vísindalíf á íslandi. vega það sem þarf af þess konar ritum til notkunar fyrir sérfræðinga í sögu íslands. Hvað mikið er eftir að rann- saka í Islandssögu er kunnugra en frá þurfi að segja. Að vísu er mikið af heimildarritum til í útlendum söfnum, en það ætti samt ekki að gera svo mikið til, aðalefnið fyrir sögu síðari tíma er heima, og það sem erlendis er, má smámsaman afrita og gefa út eftir þörfum. Eg hefi þá von, að hið nýstofnaða Islenzka Fræðafélag í Kaup- mannahöfn muni verða til þess að fylla hér skarð, og geti gert vísindaiðkunum heima á íslandi talsverðan greiða, þegar fram líða stundir. Þá vil eg að lokum nefna einn flokk vísindagreina, sem ætla má að hægt sé að stunda að nokkru leyti, en það eru náttúruvísindi, að því er snertir náttúru íslands. Þó stendur hér svo á, að þar sem ekki er hægt að fá fullnaðarþekking i neinni grein náttúrufræðinnar nema á vísindastofnunum, sem eru útbúnar með ýmsum söfnum og gripum, sem ekki er tilhugsandi að við getum fyrst um sinn komið á fót á Islandi, þá liggur það í augum uppi, að þeir sem slík vísindi vilja stunda alvarlega, verða að fá undirstöðuþekkinguna við erlenda háskóla. En á Islandi má halda áfram. Þar má safna athugunum um öll okkar náttúrufyrirbrigði, safna jurtum, dýrum og stein- um, safna veðurathugunum, rannsaka breytingar á lands- lagi, hveri, hraun og eldfjöll. Við höfum á okkar eigin dögum séð, hvað okkar mikli vísindamaður, Þorvaldur Thoroddsen, gerði, meðan hann dvaldist á Islandi í illa launuðu embætti við latínuskólann. I þess manns spor ættu fleiri að ganga; nokkrir hafa reynt það, sér og land- inu til sóma, en verkefnið er óþrjótandi, og margir fleiri þurfa að reyna enn. Enn eru búfræðisvísindin ótalin. Vísindaleg rannsókn á ýmsu, sem viðvíkur búfræði, ætti að geta þrifist með tímanum. Efnarannsóknarstofa sú, sem stofnsett heflr verið í Reykjavík, er afarnauðsynleg og gott spor í rétta átt. Eg býst við það eigi langt í land, að við getum eign- ast reglulegan landbúnaðarháskóla, sem geti kept við líkar

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.