Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1913, Page 12

Skírnir - 01.12.1913, Page 12
300 Um vísindalíf á íslandi. og stunda vísindi án þess að slá slöku við alvarleg störf lífsins, ogán þess að missa þann karlmannshug og hörku, sem fátæktin og náttúran gefa lund okkar og lífskjörum. Það er auðvitað ef samvinna á að eiga sér stað, að henni verður bezt stjórnað frá Reykjavík, og aðallega þá frá þeim vísindastofnunum, sem þar eru nú og kunna að verða framvegis. Eg hugsa hér fyrst og fremst um Há- skólann, Bókmentaféiagið, Fornleifafélagið, Náttúrufræðis- félagið, Sögufélagið og Búnaðarfélagið, að því leyti sem það getur komið til greina. Þessar stofnanir ættu að geta unnið saman að þessu. Því að eins geta þær starfað, að þeim sé veittur ríflegur styrkur af almannafé, og þykist eg vita, að þing og stjórn muni fús á slíkt, eftir því sem efnin leyfa. En það verður aldrei of sterklega brýnt fyrir mönnum, að það á ekki að ætlasttilað landssjóður geri alt. Hver sú stofnun í landinu, sem nokkuð er til þjóðþrifa, á heimting á því, að hver borgari í þjóðfélaginu, sem nokkuð má sín, styrki hana. I útlöndum gefa einstakir menn oft miljónir til vísinda- stofnana, háskóla, félaga og safna. Sumstaðar hefir jafn- vel verið í lög leitt að leggja sérstakt gjald á alla íbúa sveitarinnar eða bæjarins til að kosta bókasafn. Þá er annað, sem þarf að gera, og það er að koma á stofn vísindatímariti, einu eða fleirum. Við höfum að eins þrjú, eitt allblómlegt, Safn til sögu Islands, tvö minnir Arbók fornleifafélagsins og Skýrslu náttúrufræðisfélagsins, sem oft hefir komið fram með ýmislegt þarft og nýtt, þótt ekki sé hún fyrirferðarmikil. Rit fyrir íslenzka málfræði vantar enn. Þjóðfræðistímarit er í vændum. Skyldi nú ekki vera hægt að skyldar greinir, t. d náttúrufræði og læknisfræði, yrðu saman um að gefa út stærri tímarit? Eða ef menn heldur vilja halda þeim tímaritum áfram, sem nú eru, og þá auka þau, ef peningar fást, mætti ekki bæta við útdrætti úr helztu greinunum á einhverju heims- máli, eins og víða er gert hjá öðrum smáþjóðum, eða jafn- vel, t. d. í náttúrufræðisritum, skrifa þær við og við alveg;

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.