Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.12.1913, Side 30

Skírnir - 01.12.1913, Side 30
318 Nokkrar athugasemdir. öllum þessum árum, og að hver sá, sem vill nota þetta skjal sem sögulegt heimildarrit, verður að gera sjer ljóst, frá hvaða tíma það er. E. A. hleipir þessu fram af sjer, bersýnilega af þvi, að hann hefir sjeð missmíði á hinum eldri skoðunum sínum, að skjalið væri frá 1263—1264 eða 1281. Betur hefði eg kunnað við, að hann hefði hreinlega játað, að sjer hefði skjátlast, þegar honum var bent á missmíðin með óiggjandi rökum. Það hefði enginn lagt honum út til líta, heldur miklu fremur til sæmdar. Hann hefur viðar enn á einum stað látið sjer sæma að breita skoðun sinni eftir bendingum frá mjer1), og láir honum það enginn. Bangt er það hjá E. A., er hann kallar skjal það, sem hjer er um að ræða, »sáttmála«, því að það er eftir efni sínu og inngangsorðum einhliða alþingissamþikt. Að vísu tekur það upp efni sáttmálans frá 1262 og bætir þar við kröfum um, að lögmenn og sýslu- menn skuli vera íslenskir, og að utanstefningar skuli ekki eiga sjer stað. Enn þetta breitir ekki eðli alþingissam- þiktarinnar, hún verður ekki sáttmáli fremur firir það. Skjalið ber það hvergi með sjer, að konungsvaldið haíi samþikt það af sinni hálfu, og því getur það ekki með rjettu heitið »sáttmáli« milli Islendinga og konungs. Höf. virðist og hafa fundið til þess sjálfur, að skjalið er ekki rjett kallaður sáttmáli, því að honum verður það oftar en einu sinni að kalla það »vafasáttmála« (Rjettarst. Isl. 58. bls. 3. neðanmálsgr. og 80. bls.). Að vísu heldur hann því fram, að þau ákvæði skjalsins, sem ekki standa í sátt- málanum 1262, kröfurnar um, að embættismenn sje íslenskir ‘) T. d. hjelt hann því áðnr fram, að orðið r é 11 r í Olafssáttmál- anum og sáttmálanum 1262 táknaði eingöngu »hætnr firir meiðingar« (Rikisriett. ísl. 164—165. bls.). ftagnvart þessu síndi jeg fram á, að orðið hliti að hafa víðtækari merkingu i þessum skjölum (Upph. Kon- ungsvalds 42.—43. bls.). Nú hefur höf. tekið aftur hina firri skoðun sína og hallast að minni (Rjettarst. ísl. 74. bls.). í Ríkisrjett. Islands 179. hls. telur hann ósennilegt, að utanstefningar i Alþingissam- þiktinni frá 1300 eigi meðal annars við útboð hers af Islandi. Þessu andmælti jeg (Upph. konungsv. 57. bls.). Nú játar höf., að utan- stefningarnar nái lika til úthoðs (Rjettarst. Isl. 84.—85. bls.).

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.