Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1913, Page 53

Skírnir - 01.12.1913, Page 53
Nokkur orð um islenzkan ljóðaklið. 341 II. Liðir og lotur. í íalenzku hvílir aðaláherzlan (orðþunginn) jafnan á fyrsta atkvæði (raddhljóði) hvers orðs. Þess vegna eru bragliðir í íslenzkum ljóðum yfirleitt harðir1), stigin á undan hnigunum; íslenzk vísuorð verða ekki mjúkliða, þó að þau byrji á raddléttu atkvæði (einu eða tveimur), það eða þau eru þá forskeyti (Auftakt), en ekki upphaf á rajúklið, t. d.: Ó fög-ur l„ er vor 1 , fóst-ur 1 „ jörð — 1, Þú blá-fjalla 1 „ geim-ur með 1 , heið-jökla 1 „ hring — 1 , Þegar ljóð er flutt (lesið, þulið), hópast bragliðirnir í 1 o t u r með smáhvildum á milli. Hver lota heitir vísu- orð og á að rita það í einni línu (þeim til leiðbeiningar, sem lesa). Það ber við, að hvíld milli lotna hverfur, t. d. af því, að raddlétt atkvæði er sett í hana. Menn villast nú alloft á því (skáldin lika), að þeir búta ferliða vísuorð sundur í 2 tvíliða vísuorð, enda þótt allir 4 liðirnir heyrist glögt í einni lotu. Til dæmis má nefna: »Pönnusmíði« eftir Stefán Olafsson (Kvæði eftir St. Ó1 I. Khöfn 1885, bls. 79) og »Sveitakveðja« (Snót, Akureyri 1877, bls. 61). *) í frisk-ur hvilir t. d. allur raddþunginn á fyrra atkvæðinu. I mæltu máli hleðst nú efnisþunginn ofan á orðaþungann og veldur miklum mun á raddþunga orðanna, oft líka miklum mun á merkingu setninganna, t. d.: Eg er frisk-nr (hvað sem öðrum líður); 1» I, Eg er frisk-ur (hvað sem hver segir); I, I f Eg er frisk-ur (það vantar ekki). I, I „ I vönduðum kveðskap verður mesti efnisþunginn að vera þar sem stigþunginn er mestur; góð skáld brjóta stundum þetta lögmál — klaufarnir iðulega.

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.