Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.12.1913, Side 76

Skírnir - 01.12.1913, Side 76
364 Ýmsar skoðanir á eðli rúmsins. ur til hugar að efa þær. Eg tek til dæmis þá, að gegn um tvo punkta í rúminu megi ætíð draga eina beina línu og ekki fleiri, eða þá, að gegnum 3 punkta í rúminu megi ætið leggja einn sléttan flöt og aldrei fieiri, nema punktarnir liggi í beinni línu allir þrír. Ut af þessum frumsetning- um og öðrum þvílíkum, eru svo kenningar rúmfræðinnar leiddar með alveg óyggjandi rökum. Þó stendur nokkuð sérstaklega á um eina af grundvallarreglum rúmfræðinn- ar, þá að horn þríhyrningsins séu ætíð samtais 180° að stærð. Þessa reglu hefir ekki hepnast að staðfesta eins fyllilega og ströng rökvísi heimtar, nema með því að láta ganga á undan henni frumsetningu þess efnis, að gegn um einn punkt í rúminu megi ætíð draga eina iínu og aldrei fleiri en eina, er eigi skeri aðra tiltekna línu, sem ekki gengur gegn um punktinn, en þó liggi með þessari línu í einum og sama sléttum fleti. Þetta er nú að vísu sæmilega augljóst, en það er hvorttveggja, að frumsetning- ar eins og þessi, eru í rauninni staðhæfingar einar og þvi bezt að hafa sem fæst af þeim, og hitt, að þessi frumsetn- ing er naumast eins einföld í framsetningu eins og hinar. Það hefir því ætíð verið ósk stærðfræðinganna að losna við hana, og sanna regluna um hornasummuna í þríhyrn- ingi án hennar. Þetta hefir sem sagt ekki tekist, og þá hefir komið fram spurning um það, hvort þetta væri að kenna klaufaskap, eða hvað eg nú á að kalla það, eða það væri í raun og veru ómögulegt að leiða að því full- komin rök, með forsendum þeim sem rúmfræðin er bygð á, án þess að taka áðurnefnda frumsetningu til hjálpar. Það hefir nú sannast, að hið síðara er rétt, og það er vegna þess, að það er hægt að byggja fræðikerfi sem alveg svar- ar til hinnar alþektu rúmfræði Evkleidesar, án þess að gera ráð fyrir því, að hornin í þríhyrningi séu samtals 180°. En það fræðikerfi verður, ef eg svo mætfci segja, lýsing á rúmi, sem er ekki eins og vér hugsum oss vort rúm, heldur að sumu leyti líkara rúminu í kúluspeglinum. Einkum hefir rúmfræði Lobatschefskijs orðið fræg; hún er kend við bauga þá, er »hýperbólur« nefnast, og er þar

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.