Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1916, Side 3

Skírnir - 01.08.1916, Side 3
Skírnir]. Snorri Stnrluson. 227' í æsku að verða »víða frægur um síðir«, þá hefir hann' alls ekki hugsað út yfir Norðurlönd og Orkneyjar. Og' sízt hefir hann búist við, að konungasögurnar héldu nafni hans bezt á lofti. Sumir menn trúa því, að sagnaritarar vorir hinir fornu hafi verið svo fordildarlausir, að þeir hafi ekki hirt um að láta nöfn sín geymast. En það er mesti misskilningur. Fornmönnum var ekki síður ant um að bjarga nöfnum sinum frá gleymsku en oss, sem nú lifum, en þeim datt það víst varla í hug, að það yrði gert með því að setja nöfnin á sögurit sín. Enda hefir nöfn- unum oft verið slept i afritum, þó þau stæðu í frumritinu. Var það bæði, að menn litu þá og lengi síðan alt öðru- vísi á eignarrétt höfunda en nú, og annað hitt, að maður skoðaði sig varla rithöfund, þó að hann setti saman i heild sögusagnir, setn hann hafði heyrt úr ýmsum áttum, eða tæki eldr.i sögurit og yki og lagfærði. Eða ætli menn líti ekki líkt á þetta enn í dag, þegar þeir skrifa upp þjóð- sögu, sem þeim hefir verið kend? Gera menn sér grein fyrir, hve hægt er að gera það á margvíslegan hátt? Skyldi síra Skúla Gíslason nokkurn tíma hafa grunaðv meðan hann var að skrifa upp þjóðsögur sínar handa Jóni Arnasyni, að hann um leið var að gera nafn sitt ódauð- legt í íslenzkri bókmentasögu ? Sjálfur nefnir Snorri að eins tvo af sagnariturum þeim, sem hann styðst við, — Ara fróða, af því að hann var upphafsmaður sagnaritunarinnar og »frásögn hans öll merkilegust«, og Eirík Oddsson, sem talar svo mikið í fyrstu persónu, að það var óhjákvæmilegt að geta þess, hvaða »eg« þetta var. En hann nefnir hvorki Odd Snorra- son né Styrmi fróða, og vitum vér þó, að hann hefir notað rit þeirra, né beldur höfund Morkinskinnu, sem nú er gleymdur, en varla hefir verið það þá. Líklega hefir þó Snorri sett nafn sitt á rit sín, en varla er það nema til- viljun, að raenn vita nú, að hann hefir skrifað Heims- kringlu, enda ekki með öllu órengt. Og annar eius fræði- maður og Sturla Þórðarson var, þá getur hann að eins einu sinni um sagnaritun föðurbróður síns, og þá af því 15*
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.