Skírnir - 01.08.1916, Blaðsíða 97
: Skirnir].
Ritfregnir.
321
til eru andleg verðgildi, en mat þeirra er alt á reiki og enginn
vísindalegur grundvöllur undir því. Viö Tslendingar erum þar á
ofan eftirbátar margra annara í þessu tilliti, þó að við höfum illa
efni á því. Og þarna er nú áþreifanlegt og einfalt dæmi til
íhugunar.
Sigurður Nordal.
Ágúst H. Bjarnason, prófessor, dr. phil.: Hrauma-Jói. Sann-
ar sagnir af Jóhannesi Jónssyni frá Árseli, tilraunir o. fl. Reykja-
vík 1915.
Ollum Islendingum, þeim er láta sér ant um rannsókn dular-
fullra fyrirbrigða, hlýtur þessi bók að vera kærkomin. Hún er
um mann norður í Norður-Þingevjarsýslu, sem virðist stundum í
svefni: 1) sjá aítur í tímann, atburði, sem hann getur ekkí hafa
vitað neitt um; 2) sjá það, sem er, eða er að gerast í fjarvist hans,
meðan hann sefur; 3) heyra álengdar og lengra en venjuleg heyrn
nær; 4) sjá atvik, sem eru ekki komin fram, þegar hann sér þau.
Frá þessu er skýrt með nákvæmni og vandvirkni manns, sem bæði
hefir mikla vísindalega mentun, og líka lagt verulega alúð við
að fá að vita, hvað satt sé í sögunum.
Rétt til dæmis skal hór sýnt ágrip höf. sjálfs af einni sögunni
1 (bls. 55): »Jói sór skepnur, sem enginn veit um, á stöðum, sem
hann sjálfur hefir aldrei komið á, og sór meira að segja markið á
kindunum. Þegar hann er spurður aftur, lýsir hann staðnum, þar
sem honum sýndust kindurnar vera, svo nákvæmlega, að maður
gengur að þeim og finnur ræksnin af þeim«.
Árangurinn af rannsóknum sínum telur höf. þennan (bls. 177):
»af þeim 37 sögum, sem hér eru skráðar, hafa mór talist 13 vera
nokkurn veginn fullgildar sannanir fyrir fjarvísi Jóa, en 15 hafa
veiklað sönnunargildi; 3 sýna, að Jóa hefir getað skjátlast og 6
verða að teljast óstaðfestar. Þar sem nú 28 sögur af 37 bera að
meira eða minna leyti vott um fjarvísi Jóa, virðist vera óhætt að
álykta, að Jói hafi haft þessa gáfu til að bera«. Eg hygg, að allir
hleypidómalausir lesendur bókarinnar muni verða höf. sammála um
þá ályktun.
En þó að mór þyki Drauma-Jói ágæt bók, er eitt atriði
þar, sem eg er höf. alveg ósammála um. Og um það efni,
geri eg mór í hugarlund, að eg geti talað af eins mikilli þekkingu
• eins og aðrir menn hór á landi. Á einum stað, þar sem höf. er
21