Skírnir - 01.08.1916, Side 28
252
Snorri Sturluson.
[Skirnir.
liti stendar Snorri í þessu efni að baki fiesturn samtima'
mönnum sínum: síngirni hans bitnar á börnum hans,-
Aftur á móti sparar t. d. Sighvatur bróðir hans hvorki
fé né fjör til þess að efla og styðja Sturlu son sinn. En
orsakirnar til breytni Snorra í þessu efni hefi eg reynt
að greina að framan.
Þá má bera saman eigið takmark Snorra — völd og
metorð — og æfiferil hans, og dæma hann eftir þeirn
samanburði, líkt og listaverk má dæma eftir því, hvort
höfundurinn hefir náð tilgangi sínum með því eða ekkir
án þess að fara nánar út í að meta þennan tilgang. Að
mörgum stórmennum sögunnar er dáðst á þennan hátt.
Þau eru lifandi listaverk, höfði hærri en allur lýðurinn
og margra makar. Menn dást að eldhug þeirra, vilja-
styrk og afrekum — og gleyma að spyrja um, hvað gott
þeir hafi viljað eða látið af sér leiða. Frá þessu sjónar-
miði hefir Snorri skoðað sumar af söguhetjum sínum. En
lítum vér á hann sjálfan frá því, verður ósamræmið milli
ætlana hans öðrum megin og krafta og atgerða hinum
megin alt of bert til þess að hann geti hrifið hug vorn.
En um leið og áherzla er lögð á, að Snorri stóð ýms-
um samtímamönnum sínum að baki að röggsemi og skör-
ungsskap, er skylt að geta hins, að ein orsakanna var súT .
að hann var ekki búinn sumum lökustu göllum þeirra.
Hann sást meira fyrir, beitti hvorki ofbeldi né grimd, er
ekki beint riðinn við neitt af þeim hryðjuverkum, sem
kasta skugga á öldina. Hann verður ekki dæmdur með’
sanngirni, nema menn sjái aðra höfðingja landsins í bak-
sýn. Arngrímur ábóti segir um þá Sturlusyni, að Þórður
var þeirra beztur, Snorri í m i ð, en Sighvatur verstur
(Biskupas. II, 71). Frá siðferðissjónarmiði er varla hægt
að segja neitt betra um Snorra en þetta >í mið«. Hann
er hvorki í flokki mestu mannkostamanna né varmenna
Sturlungaaldarinnar. Og hafi hann stundum gert öðrum
rangt til, þá fór hann sjálfur ekki varhluta af yfirgangí
annara. Kolbeinn ungi rýfur sætt sína við hann og reyn-
ist honum hið versta. Sturla Sighvatsson viðurkennir