Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1916, Page 44

Skírnir - 01.08.1916, Page 44
268 Traust. [Skírnir' »Eg ætla alls ekki að neyða hana. Eg ætla aðeins að leiða hana á réttan veg, af þeim villustig, sem þér hafið leitt hana á. Hún var lofuð öðrum manni, áður en hún kom hingað. Það loforð á hún að halda«. Kristján gekk fast að karli og tók báðum höndum í axlir hans. »Nú eruð þér að rógbera barnið yðar. Eg veit að þér segið ósatt. Gerið annaðhvort, farið út héðan eða takið þessi orð yðar aftur«. »Eg geri hvorugt, karl minn«. Og hann hristi hann af sér. »Sjálf skal hún játa þetta og standa við orð sín«. »Ætli það séu ekki yðar eigin orð sem hún á að standa við. Þér hafið líklega lofað einhverjum henni, eiu- hverjum yðar gæðingi«. »Þó svo hefði verið, hefði hún samsint því, þá var það hennar gerð«. »Hún gat verið óráðin, látið málið liggja milli hluta. Hún er sjálfsagt ekki margreynd í þessháttar málum. Svo þroskast hún, verður kona, sem veit hvað hún vill, og framkvæmir það. Þér viljið sjálfsagt stúlkunni vel. Haldið þér að þér gerðuð henni góðverk með því að ætla að gera hana að ósjálfstæðri ambátt?« »Hættið þessu orðaglamri. Hugsið þér eftir þessu maður. Ef hún þverskallast og giftist yður, fær hún aldrei einn eyri eftir mig; verði hún skynsöm og fari að mínum ráðum, ætla eg ekki að sundra reitunum mínum. Eg á engin börn. Haldið þér að þér með vðar mjólkur- andliti og orðaglamri vegið á móti þessu?« »Alítið þér að eg sé fjandinn sjálfur, eða hvað?« »Eg álít yður ekkert. Eg þekki litillega til ykkar skólagemlinganna hér í Reykjavík. Systir mín giftist einum. Guð leysti hana úr þeim vandræðum, sem betur fór . . . Stína skal ekki . . .« »Það ætla eg ekki að dæma um. Hún verður sjálf að ákveða framtíð sína óneydd. En — getið þér unnið hana með heiðarlegum meðölum, þá takið hana! Við sjáumhvor betur má! Þetta eru min síðustu orð í þessu máli«.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.