Skírnir - 01.08.1916, Síða 69
Skirnir].
Utan úr heimi.
293-
ræði í samanbnrði við þetta. Næst kemst ófriðurinn milli Japana
og Rússa með um 4°/0 af núverandi herkostnaði. Á dag kemst
næst styrjóldin 1866, þar sem herkostnaðurinn var um ^/g—:/9 hluti.
Auk þess hefir mikili kostnaður stafað af ófriðinum fyrir
hlutlausar þjóðir, sem hafa neyðst til að halda vígbúnum-
her undir vopnum og auka hervarnir hjá sér. Frá upphafi ófrið-
arins til ársloka 1915 höfðu ríkisskuldir hlutiausra þjóða aukizt
um 1540 miljónir króna. —
Mun eg nú skýra nokkru nánara frá fjármálum aðalþjóðanna,.
Þjóðverja, Frakka og Englendinga.
III.
A. Þýzkaland. Fyrsta árið má telja, að Þjóðverjar hafi
eytt um 17648 miljónum marka í herkostnað, sem sé: gull og
silfur í vörzlum ríkisins 300 milj., ríkisfjárhirzluseðlar vaxtalausir
3500 milj., ríkissjóðsvíxlar 100 milj., innritanir í skuldabók ríkis—
ins 30 milj., lán frá nylendunum um 18 milj., fyrsta fasta ófrið—
arlánið 4351 milj., annað fasta ófriðarlánið 8769 milj. Auk þess
var eytt 580 railj. af reglulegu fjárlagafé 1914—15.
Skiita má ófriðinum í þrjú tímabil eftir herkostnaði. Frá 1.
ágúst 1914—1. marz 1915 var herkostnaður Þjóðverja 35—40 inilj.
marka á dag. En frá 1. marz—1. ágúst 1915 verður herkostnaö
urinn næstum helmingi meiri, sem sé um 66 milj. á dag. Fra 1.
ágúst til 1. jan. 1916 hefir herkostnaðurinn stigið jafnt og þétt
upp í 73 milj. á dag.
Samkvæmt þessu má reikna, að herkostnaðurinn nemi 28920
milj. marka annað ófriðarárið, til 1. ágúst í ár. Samtals verður
þá tveggja ára herkostnaður Þýzkalands 46568 milj. marka, eða
um 42 miljarðar króna. Af þessu fó ganga þó um 800
milj. til fjölskyldna hermanna og eitthvað til bandamanna Þjóðverja.
Herkostnaður Þjóðverja á dag er 7—8 sinnum meiri en í
styrjöldunum 1866 og 1870—71.
Þjóðverjar hafa aflað nálega alls fjárins. Þeir hafa tekið 4
föst lán. I október 5°/0 ríkissjóðsskírteini að nafnverði 1000
milj., en inn komu 969 milj. Auk þess var þá tekið 5°/0 skulda-
bréfalán, að nafnverði 3492 milj., en inn komu 3382 milj. Annað
lánið var tekiö i apríl 1915. Voru það 5°/u ríkissjóðsskírteim, að
nafnverði 776 milj., en inn komu 761 milj. Um leið var tekið
5°/0 skuldabrófalán að nafnverði 8330 milj., en inn komu 8142: