Skírnir - 01.08.1916, Síða 86
310
Ritfregnir.
[Skirnir.
ler hin stærke henni náskyld. Þegar B j ö r n e r hefir í
»Kámpadater« haldið fram, að Ramunder (Raamund) væri hinn
sami sem Hrómundur í »Hrómunds sögu Greipssonar«. Hið
sama hafa Svend Grundtvig, Sophus Bugge og Kölbing séð. Eusk-
ur vísindamaður, Le Roy Andrew, hefir haldið fram, að danska
uppritunin, nefud A só elzt, af henni sé komin önnur dönsk upp-
ritun (B), af þessari norska uppritunin (C), og af henni aftur
sænska þjóðvísan (D). Hins vegar heldur höf. — í samkvæmni
við Ax. Olrik — að norsk þjóðvísa hafi verið milliliður beggja
dönsku uppritanauna og sögunnar. Hina upphaflegu norsku þjóðvísu,
sem sé beinlínis ort upp úr sögunni, kallar hann x. Af henni sé
komin danska uppritunin A og einnig önnur tynd uppsteypa norsk,
sem hann kallar y. og sem B, C og D eigi kyn sitt til að rekja.
Iven Erningsson sé dæmi samblands þess af útiendu og
innlendu efni, sem er svo algengt í yngri íslenzkum ævintýrasög-
um. Hún sé óvenjulega löng og þó vanti ýmislegt í hana, svipi
henni einna mest til hinna löngu færeysku kvæða með efni úr
ævintýrasögum og riddarasögum; hafi hún og önnur þjóðvísa,
Kvikjesprakk Hermodsson, upphaflega átt saman, og
hafi þær verið tildrög til vísnaflokks í Noregi. — Höf. ber vísuna
saman við hina færeysku vísu Ivint Herintsson (einkum
uppritunina A). Hafi annur þáttur, Kvikils bragð, sama
innihald og Kvikjesprakk Hermodsson, og só grundvöll-
ur beggja þáttur Hrólfs sögu Gautrekssonar, eins á
færeyska vísan, Finnur hin fríði, sama uppruna og só ekkert
annað en afbrigði af vfsunni um Kvikjesprakk. Samhengið
sé svo, að það hafi verið frumkvæði, beinlínis ort upp úr sögunni,
úr því séu komnar »Finnur hin fríði« og önnur uppsteypa (y),
sem Kvikjesprakk og Kvikilsbragð eigi kyn sitt til að
rekja. — Fjórði og fimti þáttur færeyska kvæðisins G a 1 i a n s
t á 11 u r sóu sama efnis og Iven Erningsson. Virðist hun
vera samsett af atriðum frá ýmsum áttum. Bæði P. A. Munch,
S. Bugge, Gustav Storm og Kölbing setja hana í samband við
sögnina um Artus konung og riddara hans. En hér eru einnig at-
riði úr Erex sögu, Parcevals sögu og fleiri. Ax. Olrik hefir bent
á líkingu við fornfranska kvæðið um Galien, sem réttilega eig
heima 1 sagnaflokkinum um Karolingana. Knut Liestöl kemst að
þeirri niðurstöðu, eins og Storm og Kölbing, að Iven Erningsson
sé bygð á ty'ndri sögu um Artusar-sagnirnar, þ v í e n g i n d æ m i
*óu þess, að norsk þjóðvísa sóbygðbeinlínisá