Gefn - 01.01.1871, Page 11
11
sjálíir landar vorir eru að byrla oss inn að allt sé verra hjá
oss en annarstaðar og að varla sé mennskum mönnum lífvænt
á íslandi ? Er það Dönum að kenna, að alþíngið heíir ekk-
ert gert í meir en tuttugu ár annað en verið að rífastvið
stjórnina, svo vér stöndum alltaf 1 stað?
Hinum »konóngkjörnu« alþíngismöunum — og náttúr-
lega stjórninni sem er »uppspretta álls ills« — hefir alltaf
verið borið á brvn að þeir stæði oss fyrir þrifum, vildi ekki
leyfa oss að komast fram og héldi oss þar með í eymd og
volæði. J>að getur nú vel verið, að þessum mönnum hafi
yfirsést í einhverju, því öllum kann yfir að sjást; en vér
höldum, að í þessu hafi þeim ekki yfirsést; þar á móti er
það víst, að Íslendíngar hefði sjálfir getað tekið sér miklu
betur fram í mörgu en þeir hafa gert, ef þeim ekki hefði
verið aptrað og þeir bældir niður einmitt af þeim alþíngis-
mönnum, sem mest hafa staðið á þönum með fielsisprédik-
auir og sjálfsforræði. það er yfir höfuð öldúngis rángt
að bera stjóruinni á brýn nokkurn hlut í þessu efni, því
vér skulum geta sannað — þó vér ekki gerum það hér —
að hún hefur styrkt þjóðerni okkar og frelsi miklu meir en
þessir þjóðglamrarar sem ekkertgera annað en byggja tóma
loptkastala og fylla landsmenn með alls konar slúður og
slaður. Yér eigum að fara að verða »eins og aðrir« trú1
eg — svo eigum við að fá háskóla — náttúrlega fullan af
frelsisprófessórum, því hvurn andskotann varðar um lærdóm-
inn? — og svo ýmisleg gripahús et cetera — til alls
þessa eiga Danir að púnga út með peníngana, og það því
fremur sem vér sjálfir höfum miklar útgiptir sem ekki verður
hjá komist, til að mynda hundrað þúsund dali á ári fyrir
brennivin — það er allstaðar viðurkennt að sá lakasti vegur
til framfara liggur í gegnum stjórnirnar, en sá farsælasti í
gegnum sjálfar þjóðirnar; en þetta er óhugsandi fyrir oss
Íslendínga: vér eyðum hundrað þúsund dölum á ári fyrir
brennivín, vér gáfum strax tvöþúsund dali til minnisvarða
Lúters sem enginn okkar fær að sjá, vér gáfum Dönum