Gefn - 01.01.1871, Side 31

Gefn - 01.01.1871, Side 31
31 og hrjóstrug; þai' sem allir fjársjóðir fornaldarinnar voru harðlæstir höndum jötna og landvætta — höfum vér ekki heyrt að Kólúmbus fór til Islands til þess að fá einhverjar fregnir um lönd í vesturátt, en fekk engar af því hann gat líklega ekki talað við neinn íslendskan mann? Eins og Leifur og Yínlandsferðirnar hafi nokkurn tíma gleymst á Islandi? — Hvaða unað eða gleði munu höfuðsmennirnir hafa haft af okkar fjöllum, forsum og dölum? Litu þeir á hraungjótuna, þar sem bláklukkan hneigði sig upp við mosa- vaxinn stein, eða hlustuðu þeir á varpfuglana sem hjöluðu meðan sólin rann? Nei, sú stórkostlega náttúra hefir sýnst þeim alvarlegri og illúðlegri en svo að hún fengi bætt þeim upp fósturjarðar-missinu; og hverr getur láð þeim það? Hverr getur láð þeim þó þeir áliti það sem útlegð og ill forlög að hljóta að hýma hér út í norðurhöfum í einveru og kulda, lángt frá glaumi heimsins og fósturjörðu þeirra? Svona hafa allir danskir stiptamtmenn vorir hugsað, allt þángað til þessi kom, því hann er sá einasti sem hefir getað — sjálfsagt meðfram fyrir krapt ætternisins — sætt sig við Island og fundið til þess — vér getum ekki varið oss að hugsa um morgunroða og sólarhoða. Af ölluþessu geta allir séð, sem vilja sjá, að fram yfir aldamót getur ekki verið um neina pólitiska skoðan, ekki um nokkra rétta skoðan á landi voru að tala, hvorki af Dana né Íslendínga hálfu. Eptir allri aðferð sjálfra forfeðra vorra höfum vér fulla ástæðu til að gruna, að einmitt þeir sjálfir bafi gefið stjórninni þessa jarðasölu-liugmynd, þrátt fyrir það þó sagt sé að Jón Eiríksson hafi sett sig á móti henni. Að minnsta kosti var ekki nóg með það að jarð- irnar voru seldar, heldur urðu Íslendíngar sjálfir guðsfegnir að geta hramsað þær til þess að níða þær niður sem mest og láta þær síðan leggjast í eyði. Um þetta getur heldur enginn, og ekki lætur neinn sér detta í hug, að það fyrsta stig til framfara er það, að hafa þrek til að kannast við sínar eigin yfirsjónir.

x

Gefn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.