Gefn - 01.01.1871, Side 42
42
minna á að alltaf er svo kveðið að orði að Island »gekk
undir« Xoreg, að Islendíngar »gengu á konúngs vald,«
»gengu á hönd Noregskonúnga« o. s. fr.; en vér bæði
neitum því, að þetta hlutfall Islands sem þá var, og það
hlutfall landsins sem síðar var, geti verið sama sem menn
nú skilja við »Personal-Union«; og svo hefðum vér líka
óskað að nefndin í stjórnarmálinu hefði komið fram með
betri ástæður fyrir skoðan sinni en hún hefir gert (Alþ. t.
II bls. 261—268, 353—365), og vér drápum á að framan
hversu heppilega nefndinni liati tekist að finna Islaudi sama-
stað í ríkisheildinni. ]>að er ekki heldur von, því hin
stjórnlegu hlutföll í sögunni eru öll önnur í fornöldinni, og
önnur á seinni tímum, svo sagan gefur hér engan grundvöll
sem bygt verði á nema þær tómu formalitates og einstök
tilfelli á stáugli, sem nefndin hefir komið fram með, en
sem eru engar realitates eða fastar og almennar ákvarðanir,
því þær hafa aldrei verið til; og með allri sinni röksemda-
færslu hefir nefndin ekkert getað ísannað annað en það að
Island hafi alltaf verið »land« eða »útland« öldúngis eins
og það er enn, og þar sem Island er látið hafa sérstakleg
»lands«-réttindi, þá hefir stjórnin þar með einmitt fest og
viðurkennt fornöld vora. »Personal-Union« merkir, eins og
allir vita, að Island ætti að hafa verið »ríki« samsíða Noregi
og Danmörku; en eins og aldrei nokkrum manni datt þá í
liug orðið »Personal-Union«, eins vita líka allir að Island
hefir aldrei verið kallað »ríki«, og allar vorar sögur og öll
lög sýna að það var aldrei þannig skoðað; það var einúngis
kallað »landið«, og það finnst mjög lítið og óvíða móta
fyrir þeim pólitiskri meðvitund um þetta efni sem líkja
mætti við vora tíma. Jarldómur Gissurar þorvaldssonar var
ekkert annað en þrælsleg undirgefni við Hákon gamla, það
sýnir öll sagan um hann, og sama er að segja um alla
aðra þá sem íslandi áttu að stjórna af konúnganna liálfu,
og eptir því fóru öll önnur hlutföll, því eptir höfðinu dansa
limirnir. Hvorki víg Didriks Mynden (1540) né aðrir