Gefn - 01.01.1871, Page 60
60
eða ísalög, sem vera kynni i kríng um sjálfan jarðarmönd-
ulinn, heldur þarf og að rýna eptir vmsum náttúrukröptum,
sem enn eru ókunnir. Á þessum stöðvum, þar sem segul-
nálin eigi hetir það eðli að vísa á norðurátt; þar sem gángur
sólar og túngls ekki stendur í samhijóðan við daglegan snún-
íng hnattarins; þar sem heimkynni norðurljósanua er; þar
sem eðli efnanna er svo ólíkt því sem vér annars erum
vanir, að járnið er kramt og kvikasilfrið hart, en snjórinn
þurr eins og ijörusandur; þar sem jörðin missir miðflóttaafl
sitt, en ókannað haf hreifist með flóði og fjöru eptir ókunn-
um lögum; þar sem sex mánaða dagur skiptist á við jafn
lánga rökkurnótt, eri gagnsæi gufuhvolfsins, sem er miklu
meira en hjá oss, gerir miklu hægra fyrir að skoða himin-
túnglin; þar sem hitiog kuldi deilast eptir ókunnum lögum:
þar mun eflaust margt nýtt verða íundiö, efþángað komast
lærðir menn með góð og hentug verkfæri.«
Af því ísinn getur myndast hindrunarlaust í þessum
löndum að mestu leyti, þar sem víðast hvar er sjávardjúp
að því er menn enn þekkja til, þá leiðir þar af, að honum
er allt öðruvísi varið en þeim ís eða jökli sem á landi
myndast. þ>ó hafísinn, sem rekur suður eptir, sé eins ógur-
legur og allir vita, þá gefur hann mjögdaufa hugmynd um
heimskautsísinn eins og hann er í allri sinni köldu dvrð;
því þær myndir eru óteljandi, sem hann fær af sólarhita og
loptstraumum, svo því verður hvorki lvst með orðum né
myndum svo nærri lagi sé. Opt eru þar rauuar þokur og
allt grátt og illúðlegt að sjá; en opt er og loptið svo tært
að undrum gegnir, eru þá jakarnir víða aðlíta sem hallir og
súlnaraðir. geislandi og ljómandi með öllum litum regnbogans
eða sem á gull eitt og silfur sjái. Má nærri geta að hugur
manna hneigist til alvöru og lyptist frá hugsunum ens dag-
lega lífs í þessari hátignarlegu kyrð lángt frá öllum manna
bygðum, lángt frá bygðum löndum, hvort heldur sólin slær
geislum sínum á jökulhjálmana þegar hún rís eða hnígur í
æginn, eða túngl og norðurljós sveipa þá undursamlegum