Gefn - 01.01.1871, Page 66

Gefn - 01.01.1871, Page 66
66 lega af þeirri orsök, að menn voru þá svo ókunnir hnettinum, að allir héldu að Ameríka væri sama sem Indíaland, og væri ]>ar fullt af gulli og gersemum og alls konar gæðum; menn fýsti jþví að finna sem stytstan veg til ]>essa sælulands — jþað var eins og þegar menn í fornöld gerðu margar atreiðir til að leita Ódáinsakurs, sem vér bæði þekkjum af sögu Eireks viðföria og helgra manna sögum. Jafnvel Kólúmbus dó í þeirri trú, að hann hefði fundið Indíaland eða austur- strönd Asíu, sem þá var kölluð Zipango (Japan), og menn fóru brátt að reyna fyrir sér, hvort ekki yrði þángað komist á enn hægri leið en þeirri sem Kólúmbus fór þvert yfir At- lantshafið. fessa freistuðu menn á þrennan hátt: 1, menn vonuðust eptir að geta komist þángað norður fyrir Norfeg og svo fram með norðurströndum Asíu eða þar í gegnum álfuna, því menn þektu þá enn ekki norðurstrendur hennar; 2, menn komust þó brátt að því, að Ameríka og Indíaland voru sitt hvað, og þá vildu menn reyna hvort ekki væri neinn sjóvegur á milli Atlantshafsins og kyrra hafsins; og 3, hugðu sumir að takast mætti að komast þvert yfir sjálfan jarðarmöndulinn, og héldu að þar væri auður eða íslaus sjór. Fyrst stefndu menn í norður og vestur, en komust varla norðar en Nýfundnaland og þar yfir á meginland og fundu þar Indíana. J>etta var í 15du aldar lok og snemma á 16du öld. Lengi leituðu menn fyrir sér íþessa átt(miðað frá Englandi, Frakklandi og Spáni), en ekkert varð ágengt. Menn fundu þá uppá því að leita í gagnstæða átt og ætluðn því að komast norður fyrir Noreg og Finnmörk, alltaf til þess að ná til Indíalands. Enskt kaupmannafélag bjó þá út þrjú skip, sem létu úr höfn árið 1553. Við norðurhöfða Noregs skildist eitt frá í stórviöri, en tvö héldu saman og komust til Ný-Semblu; hét sá Willougby er fyrir þeim var, og sneri hann þar aptur og lenti við Varðevjarhús í Noregi. J>aðan leituðust bæði skipin við að komast fram með landinu austureptir; þar eru óbygðir einar og taldar með Kússaveldi.

x

Gefn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.