Gefn - 01.01.1871, Side 71

Gefn - 01.01.1871, Side 71
71 sem Ross hafði hæct við, og fyrst að reyna að komast inn í eða í gegnum Lankaster-sundið. Hinn lsta ágúst komust skipin Hekla og Grípir inní sund þetta; stýrði Parry ferð- inni og hugði gott til, því enginn ís tálmaði, og þóktist hann nú vera á réttri leið til kyrra hafsins. Fyrst héldu þeir í gegnum Prins Regents sund, svo kallað; en þá kom- ust þeir ekki lengurfyrir ís og urðu að hverfaaptur; héldu þeir þá lengra vestur eptir í gegnum Barróws-sund. Pjórða september voru þeir komnir að llOda mælistigi vestur- lengdar; en fyrir það hafði verið heitið 5000 punda verð- launum, og unnu þeir svo til þeirra. Var Parry þá kominn á suðurströnd Melville eyjar og varð að sitja þar um vet- urinn; en veturinn kom mjög snemma og skipin gaddfrusu íísnum. þ>at' satParrymed 94 menn í jökulgaddi og öræfum og var þar nótt í 84 daga samfleytt; tíu mánuði voru þeir þar, og losnuðu skipin loksins í byrjun ágústmánaðar, en óvinnanda verk var að komast lengra fyrir ísnum, og svo héldu þeir aptur heim á leið; höfðu þeir komist hálfa leið, og þókti fræknleikur. Seirina hefir félag nokkurt, sem kennt er við Húðsons- flóa, látið mæla álla norðurströnd Ameríku, og er þar með sannað, að frá Beríngs sundi og að fiskifijótinu mikla sé einlægur sjór, og þá sjóleið allt vestur úr frá vetrarsetustað Parrys. En þó menn vissi þetta, þá höfðu engir samt enn siglt þessa leið alla, því mælíngarnar höfðu verið gerðar fram með ströndunum, á landi. Parry hafði einnig dottið í hug að leita sjóleiðarinnar sunnar; hann hélt því enn á ný á stað og hafði þá skipin Heklu og Fúríu, og komst inn á Húðsonsflóa og þaðan inn í Repúlsvík — en þar komst hann ekki lengra, því þar var ekkert sund. Á þeim stöðv- um varð hann enn að hafa vetrarsetu; og eptir að orðið hafði að saga skipin úr jökunum og menn höfðu barist við ísinn um nokkrar vikur, þá sat hann annan vetur þar norðurfrá og sneri aptur heim um sumarið 1823. Opt höfðu þeir höggvið og sagað ísinn hálfa mílu vegar, og leitt skipin

x

Gefn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.