Gefn - 01.01.1871, Page 96

Gefn - 01.01.1871, Page 96
96 mundi aldrei unnin verða, og ef París yrði unnin, J>á væri allt Frakkland þar á bak við; en £>jóðverjar skutu á borgina þángað til hún gafst upp; þjóðfrelsismennirnir höfðu reist mikla herflokka — enn meiri að tölu en lið Napóleons var, og var grobbað og gortað af þeim allt sem varð, en það var ekki nema höföatalan, þeir voru ónýtir og allur þeirra útbún- íngur ónýtur, herforíngjarnir ónýtir og allt ónýtt. En gortið vantaði ekki og seint munum vér gleyma því sem sagt var um hversu ramlega Frakkar hefði víggirt Parísarborg, það átti að vera svo ógurlegt að menn urðu dauðhræddir af að líta á vígin og vélarnar — nú er það komið upp að allt þetta var tóm lýgi og þessar og aðrar lygarhafa blöðin tælt fólk til að kaupa svo ærnum peníngum mundi nema ef öll þau svik væri saman talin. Vilhjálmur konúngur lét vígja sig undir keisarakrúnu í Versölum og hefir honum mjög verið brugðið um að hann hafi haft guðs nafn allmikið um hönd í orðum sínum um stríðið og þókst vera verkfæri í guðs hendi og sendur af guði til að viuna þessi stórvirki. En vér vitum ekki hvort hitt er betra, sem Frakkar og þeirra vinir hafa gert, að hæðast að guði; það sem er víst, er það, að guð hefir ekki hjálpað Frökkum í þetta sinn; eptir fall Napóleons biðu þeir alltaf ósigur í hvert sinn og voru í enni lierfilegustu eymd, og er nú allt þeirra gort og blaðanna skrum hrunið saman eins og spilaliús. Afdrifþeirra hafa sýnt, að það er þjóðarinnar eigin spil'íng, en ekki óvitska og prettvísi Na- póleons, sem hefir steypt Frakklandi. Frakkar þykjast vera katólskir að trú, en hafa ekki trú heldur en hundar, og trúarleysi þeirra á án efa mikinn þátt í atburðum þessum. Eptir að vopnahlé hefir staðið um stund, er nú friður loksins á kominn og eiga Frakkar að láta úti Elsass, nokkuð af Lótríngen og allt að tveim þúsund millíónum dala; þykja það harðir kostir, en við öðru var ekki að búast.

x

Gefn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.