Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1893, Qupperneq 21
21
drápi Hauks. Áskell hefir náð honum í götuskarðinu fyrir aust-
an ána og vegið hann þar. Á einum stað við ána, rétt við göt-
una að ofanverðu, mótar fyrir lftilli upphækkun, sem er hæst í
miðju, nokkurra feta á hvorn veg. Líklegt er, að þetta sé dys
Hauks, enn það gat eg ekki rannsakað, því að eg hafði ekki tíma
til þess. Þaðan liggr vegrinn, þegar fram hjá Hólum kemr, út
á Vatnsháls, sem svo heitir enn í dag. Fyrir vestan hálsinn er
Vatnsdalr, litill dalr með vatni í. Þar einhversstaðar hafa Þór-
beinisstaðir verið, enn bæjarstæðið hefir þó ekki með vissu fund-
izt. Dalrinn myndast af Drápuhliðarfjalli að ofan, enn Seljafelli
að norðanverðu. Norðan undan fellinu liggja Seljabrekkur, sem
svo heita enn í dag. Þær eru skamt fyrir innan Drápuhlíð; þar
er nógr skógr til kolgerðar enn í dag. — Eg skal geta þess hér,
að þegar Arnkell eltir þrælana, mun vera misritað Oxnabrekkur
fyrir Séljabrékkur, því að það er ólíklegt, að hann hafi elt þá alt
ofan fyrir Vigrafjörð; þar heita Öxnabrekkur enn í dag. Þetta
er langr vegr. Frá Drápuhlíð liggr vegrinn út að Gríshólsá og
Bakká, sem áðr hétu einu nafni Laxár. Á milli Laxánna var
réttin, sem talað er um í Eyrb., enn er eystri ánni var á öldinni
sem leið veitt vestr fyrir hina gömlu rétt, var réttin færð upp
undir Arnarhól, og þar stendr hún, enn bærinn Skjöldr mun
standa þar sem hin forna rétt var. Fyrir utan Bakká hefjast
»Skeið«, sem kölluð eru; það eru eggsléttir melar og ná alt út
að Bakka (Kóngsbakka). Bakki stendr við sjó fram, kippkorn
fyrir utan það er Hofsvogr skerst inn; frá bænum og ofan til
sjávar er lítill spotti, og því hafa þeir tjaldað þar yfir Bergþóri,
með því maðrinn var kominn að dauða. Um reið þeirra Stein-
þórs brott af Bakka inn eftir Skeiðum o. s. frv. er alveg rétt að
orði komizt i Eyrb. — Skamt fyrir utan Bakka er Stafá, lítil á;
hún er takmarkið að utanverðu í landnámi Þórólfs mostrarskeggs,
enn Þórsá að innan. — Eg hefi þannig farið um alt landnám
Þórólfs.
Berserkjahraun.
(30. ágúst).
Skamma bæjarleið frá Stafá stendr bærinn Hraun (»undir
Hrauni«), þar sem Viga-Styrr bjó. Bærinn stendr í dalverpi undir
hálsi, er Hraunsháls heitir, að vestanverðu undir honum. Bærinn
stendur á hæð nokkurri ofan til í túninu og hallar því móti