Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1893, Blaðsíða 30
30
það heflr ekki fylgt hínni upphaflegu frásögn, eins og á fyrsta
staðnum hér að framan, og því heflr söguritarinn ekki getað sagt
það. Þaðan fór Flosi til Bersastaða, enn þeir eru fyrir norðan
fljót, eða eiginlega fyrir ofan Fljótsdals botninn norðanmegin i
dalnum. Þaðan fór Flosi á Valþjófsstað; hann stefndi norðan-
megin i Fljótsdal fyrir framan þar sem dalrinn skiftist. Nú
stendr í sögunni, að þeir Flosi fóru fyrir neðan Lagarfijót og yfir
heiði til Njarðvíkr; þeir hafa þá farið út með fljótinu að austan;
heiðin, sem nefnd er, heitir nú Gönguskarð, og liggr ofan til
Njarðvíkr. Þetta hafa þeir Flosi með engu móti getað farið á
einum degi, enn hér er eins og fyrri, að söguritarinn heflr eigi
vitað um náttstaðinn eða náttstaðina, því að það hefir ekki fylgt
hinni upphaflegu frásögn, og bendir þetta enn á, að hann heflr
ekki búið neitt til sjálfr, þvi að hví skyldi hann ella láta ógert að
segja frá náttstöðunum sumstaðar? Það var þó fróðlegra og
gerði söguna fyllri. Þaðan fór Flosi til Vopnafjarðar; þá hefir
hann farið upp Gönguskarð aftr og norðr yfir Lagarfljót og Jök-
ulsá, og svo Smjörvatnsheiði, sem sagt er að sé þingmannaleið
brúna á milli. Þetta munu hafa verið þrjár dagleiðir hans, enn
náttstaðir ekki taldir, af sömu ástæðum sem fyr er sagt. Frá
Hofi fór Flosi að Krossavík ; það er hæg þriggja tíma reið.
Nú stendr í Njáiss.: »Þaðan fóru þeir norðr til Vopnafjarð-
ar ok upp í Fljótsdalshérað*. Þetta sýnist vera ritvilla í stað-
inn fyrir: »Þaðan fóru þeir inn Vopnafjörð ok upp í Fljótsdals-
hérað, ok gistu at Hólmst'eins Spak-Bersasonar«, þ. e. á Bersa-
stöðum. Þaðan fór Flosi upp í Fljótsdal, og þaðan suðr á fjall
um Öxnahraun og ofan í Sviðinhornadal, og út um Áiftafjörð
fyrir vestan. Öxnahraun hlýtr að vera eða hafa verið kallað
milli Fljótsdals og Sviðinhornadals, sem nú heitir Hamarsdalr,
og gengr upp af Hamarsfirði.
Þessi frásögn í Njálss. er öll rétt, að þvi er séð verðr, og
vel og skilmerkilega frá sagt; hefi eg sjálfr farið mest af þess-
ari leið, og að öðru leyti stuðzt við frásögn merkra manna, ná-
kunnugra.
Þvottá.
(24. júní).
Þvottá er syðsti bærinn í Álftafirði; þar er fallegt og slétt-
lendi mikið niðr frá bænum, og langt til sjávar; bærinn stendr
ekki langt frá fjallinu. í suðr frá bænum spölkorn hefir hinn