Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1893, Síða 30

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1893, Síða 30
30 það heflr ekki fylgt hínni upphaflegu frásögn, eins og á fyrsta staðnum hér að framan, og því heflr söguritarinn ekki getað sagt það. Þaðan fór Flosi til Bersastaða, enn þeir eru fyrir norðan fljót, eða eiginlega fyrir ofan Fljótsdals botninn norðanmegin i dalnum. Þaðan fór Flosi á Valþjófsstað; hann stefndi norðan- megin i Fljótsdal fyrir framan þar sem dalrinn skiftist. Nú stendr í sögunni, að þeir Flosi fóru fyrir neðan Lagarfijót og yfir heiði til Njarðvíkr; þeir hafa þá farið út með fljótinu að austan; heiðin, sem nefnd er, heitir nú Gönguskarð, og liggr ofan til Njarðvíkr. Þetta hafa þeir Flosi með engu móti getað farið á einum degi, enn hér er eins og fyrri, að söguritarinn heflr eigi vitað um náttstaðinn eða náttstaðina, því að það hefir ekki fylgt hinni upphaflegu frásögn, og bendir þetta enn á, að hann heflr ekki búið neitt til sjálfr, þvi að hví skyldi hann ella láta ógert að segja frá náttstöðunum sumstaðar? Það var þó fróðlegra og gerði söguna fyllri. Þaðan fór Flosi til Vopnafjarðar; þá hefir hann farið upp Gönguskarð aftr og norðr yfir Lagarfljót og Jök- ulsá, og svo Smjörvatnsheiði, sem sagt er að sé þingmannaleið brúna á milli. Þetta munu hafa verið þrjár dagleiðir hans, enn náttstaðir ekki taldir, af sömu ástæðum sem fyr er sagt. Frá Hofi fór Flosi að Krossavík ; það er hæg þriggja tíma reið. Nú stendr í Njáiss.: »Þaðan fóru þeir norðr til Vopnafjarð- ar ok upp í Fljótsdalshérað*. Þetta sýnist vera ritvilla í stað- inn fyrir: »Þaðan fóru þeir inn Vopnafjörð ok upp í Fljótsdals- hérað, ok gistu at Hólmst'eins Spak-Bersasonar«, þ. e. á Bersa- stöðum. Þaðan fór Flosi upp í Fljótsdal, og þaðan suðr á fjall um Öxnahraun og ofan í Sviðinhornadal, og út um Áiftafjörð fyrir vestan. Öxnahraun hlýtr að vera eða hafa verið kallað milli Fljótsdals og Sviðinhornadals, sem nú heitir Hamarsdalr, og gengr upp af Hamarsfirði. Þessi frásögn í Njálss. er öll rétt, að þvi er séð verðr, og vel og skilmerkilega frá sagt; hefi eg sjálfr farið mest af þess- ari leið, og að öðru leyti stuðzt við frásögn merkra manna, ná- kunnugra. Þvottá. (24. júní). Þvottá er syðsti bærinn í Álftafirði; þar er fallegt og slétt- lendi mikið niðr frá bænum, og langt til sjávar; bærinn stendr ekki langt frá fjallinu. í suðr frá bænum spölkorn hefir hinn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.