Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1893, Blaðsíða 44
44
fornu bæjarhús, því að hér er bæði hæst og fallegast o. fl. Eg leit-
aði um alt túnið og fann hvergi tóftir, sízt slíkar, sem hefðu
getað verið bæjarhús.
Þar sem nú báðar sögurnar segja, að þar séu nú sauðahús,
sem líklegt er að séu orð söguritarans, heldr enn að það hafl
fylgt hinni upprunalegu munnlegu frásögn, þá er um tvent að
gera; annaðhvort hafa sauðahús þessi staðið hér einhversstaðar
annarsstaðar, eða þá hitt, sem mér þykir öllu líklegra, að úr
þessari stóru tóft, sem upprunalega mun hafa verið skáli, hafl
verið gert sauðahús, þannig að þeir millumveggir, sem í tóftinni
kunna að hafa verið, hafi verið teknir f burtu og síðan gert úr
henni fjárhús, enn að minsta kosti hin efri útbygging, sem er
hálf kringlótt fyrir endann, sé upprunaleg, enda sýndist mér hún
mest útflött. Slíkar útbyggingar við hliðvegginn vóru við skál-
ana, og hefi eg oft fundið það, enn alls ekki við fjárhús hér á
landi, hvorki í fyrri tíð, né nú. I öllum þeim stóru forntóftum,
sem eg hefi fundið á ýmsum stöðum hér á landi og bæjarhús
hafa verið, hefi eg fundið merki til millumveggja, er sumstaðar
hafa verið glöggvir; sumstaðar hafa verið þrjár afmarkanir1. Það
er því óefað, að þetta afar-langa hús, sem maðr með rökum veit
að hefir upprunalega verið skáli, hefir hlotið að vera með af-
mörkunum einni eða fleirum. Nú er það eftirtektarvert, sem
Dropls. segir: »en nú eru þar sauðatóftir«. Þetta sýnir að minsta
kosti, að þegar sagan var fyrst færð í letr, þá vóru hér komn-
ar tóftir, því hús og tóftir er sitthvað, og sýnir þetta aldr tóft-
anna, því Dropl.s. hlýtr að vera rituð nokkuð snemma í fyrstunni;
það sýna hinar nákvæmu viðburða og staða lýsingar, sem koma
svo vel heim við rannsóknina. Vér getum því nokkuð farið
nærri um aldr þessara tófta og þá í samanburði við aðrar fornar
tóftir, sem maðr veit með vissu hve gamlar eru, og eru í
líkum jarðvegi. Það er því áreiðanlegt, að hér eru fundnar leifar
af þessum fornu bæjartóftum, þar sem einungis var eitt mjög
stórt hús með útbyggingu, því að það er víst, að hér hafa engar
aðrar tóítir verið á neinn hátt viðtengdar, því að eggsléttr halli er
umhverfis allar tóftirnar alt heim, eða upp að veggjunum.
Þórir bjó i Atlavík eftir Atla. Lengra er ekki frásagt, enn
1) Eg heíi ekki sýnt minumvegg í skálanum á Sæhóli, með því að eg
var þá ekki viss um það, enn við síðari rannsókn heíi eg t'undið þar að
minsta kosti eina afmörkun. Skálinn er um 99 fet á lengd, eins og eg hafði
sagt í byrjuninni, því síðan heíi eg fundið undirstöðuna.