Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1893, Page 28
Rannsókn í Austfirðingaijórðungi
1890.
Ef'tir
Sigurð Yig'fússon.
Eg fór heiman úr Reykjavík með póstskipinu »Laura«
mánudaginn 16. júní kl. 9 um morguninn suðr og austr um land
til Djúpavogs við Berufjörð, og kotn þangað 17. júníum kveldið.
Þar fór eg af skipinu. Daginn eftir (18. júní) fór eg frá Djúpa-
vogi ríðandi í kringum Hamarsfjörð (Alptafjörð nyrðra) og suðr
í Álptafjörð, þar sem Síðu-Hallr bjó. Var um nóttina á Star-
mýri, sem er utarlega í firðinum, næsti bær fyrir innan Þvottá.
Hinn 19. var rigning og óveðr; var eg þvi kyrr þann dag, enda
var eg vesæll af kvefi. Hinn 20. fór eg frá Starmýri og suðr
yfir Lónsheiði, sem er um 3 tíma ferð milli bygða; þá er komið
ofan í Lónið og er þar sléttlendi mikið. Bær stendr í miðju
Lóninu, þar sem Þórðr skeggi bjó fyrst og síðar Ulfljótr, sem lög
hafði út hingað. Jökulsá í Lóni er allmikið vatnsfall og er
skamt fyrir sunnan Bæ. Síðan fór eg suðr Almannaskarð, sem
er millum Lóns og Skarðsfjarðar, enn Skarðsfjörðr er eystri hluti
Hornafjarðar. Undir Skarðsbrekku bjó Hrollaugr son Rögnvalds
Mærajarls; þar sést nú ekkert fyrir tóftum, og enginn bær er á
því svæði, enn það mun víst, að Hrollaugr hefir búið hér, þvi
að Skarðsbrekka heitir enn í dag brekkan niðr undan skarðinu,
enn þarerum enga brekku aðra að ræða; hér hefir verið miklu
meira undirlendi áðr, því að séra Jón prófastr í Bjarnanesi segir
mér, að gamlar sagnir séu um, að þar sem Skarðsfjörðr er, hafi
einungis verið eitt eða tvö stöðuvötn1, enda er hann ekki nefndr
1) 1 ísl. Fornbréías. I, 536, er þó nefndr »8karðsfjörðr« i skipan Sæmund-
ar Ormssonar um almenning í Hornaíirði (frá því um 1205). V. Á-