Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1893, Síða 58
58
Jökuldals og Vopnafjarðar. Uppi af Sunnudal þar í heiðarbrún-
inni er fell, sem cnn í dag heitir Svartsfell. Frá Svarti og vígi
hans er greinilega sagt í Vopnf.s. (bls. 4). Broddhelgi var þá
12 vetra, og var það mikið þrekvirki, því Svartr var »rammr at
afii ok vígr vel«, og var það meira enn þegar Bolli Bollason
lagði í gegnum Helga Harðbeinsson, undir þeim kringumstæðum,
er þar vóru og eg hefi áðr frá skýrt, og trautt hygg eg að menn
geti hiklaust kallað alt slíkt ósannindi í sögunum. Kunnugir
hafa sagt mér, þá er eg var á Hofi, að enn sæist votta fyrir
hreysi Svarts norðan til í fellinu, uppi í gnípunni, enn með því
að eg sjálfr hafði ekki tíma eða kringumstæður til að leita að því,
þá hefi eg beðið séra Jón prófast á Hofi að komast eftir því við
tækifæri, og ef það reyndist satt, þá að senda mér um það
greinilega skýrslu.
Sunnudalsþing
(28. júlí).
Eg fór frá Hofi og upp í Sunnudal til að rannsaka þingstað
þar og fleira. Inn af Vopnafirði eða héraðinu ganga dalir tveir;
Hofsdalr er hinn nyrðri, sem er stærri og fjölbvgðari, þar í er
hinn gamli og merkilegi bær Bustarfell; hinn dalrinn gengr fram
sunnar og liggr meira til suðrs. Þessi dalr er nú kallaðr
Hraunfellsdalr, enn hét áðr Sunnudalr, eins og Vopnfirðinga saga
sýnir. Utan til í dalnum, austanmegin Sunnndalsár, stendr bær-
inn Sunnudalr, litlu innar enn andspænis Hofi og nærfelt í hásuðr
þaðan. í Sunnudal bjó Þórarinn faðir Þorsteins stangarhöggs,
er vann fyrir búinu. Þeir vóru því nábúar Bjarni Broddhelga-
son og Þorsteinn.
Fyrir framan bæinn í Sunnudal, fram undir túngarði, er
einstakr hóll, toppmyndaðr; þar stendr á lítill tóftarkumbaldi,
og mun þetta vera hóll sá, er þeir börðust á Bjarni Broddhelga-
son og Þorsteinn, eða háðu einvígið, því að lækjarspræna rennr
þar niðr rétt fyrir franian túngarðinn, og er það sá lækr, sem
sagan nefnir, og enginn annar lækr er þar til í túninu. ílóll
þessi mun vera 70—80 faðma frá bænum. Annars er þáttr
Þorst. stangarh. mæta vel sagðr, og stendr þaö alt heima, er
hann talar um, að þvi er séð verðr.
Sunnudalsþing hefir á sínum tfma verið þriðja þingið, eða
hið norðasta í Austfirðinga fjórðungi. Það verðr ekki efazt um,
að þingstaðrinn hafi verið nálægt bænum Sunnudal, þar sem það