Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Side 24

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Side 24
24 skift í þverhandar breiða feta, og þeir síðan kljáðir niður á gólfi, og steinn bundinn neðan í hvern feta. Nú er byrjað að gera fyrir vaðmálið og verða 2 að gera það. Kvarðinn er lagður í skilið upp við rifinn; hafaldaripillinn er bund- á móti skaftinu, og þráðurinn hafður á milli. Sköftin eru 2, bæði bundin eins, nema annað neðar en annað, og síðan tekin hafalda- hönk eða hnykill, sem ekki á að slitna, yfir vefinn allan og byrj- að frá vinstri hendi. Sá fyrri tekur 2 þræði í jaðrinum, annan í bak en annan í fyrir, og bindur á neðra skaftið; en annar tekur 2 þræðina næstu og bindur þá á aftara skaftið með hafaldinu. Síðan eru teknir fjórir aðrir þræðir, og tveir af þeim, annar í bak en annar i fyrir, kapmeldir við neðra skaftið með hafaldinu, en tveir af þeim kapmeldir við efra skaftið. Svo er haldið áfram vefinn til enda, en altaf á ripillinn að vera með í hafaldinu á móti skaft- inu, og hann smátt og smátt dreginn úr til að fría á hafaldinu. Nú er búið að gera fyrir efsta og neðsta skaftið og kemur þar eftir miðskaftið. Það er bundið á móti riplinum og tekið eins og áður er sagt frá vinstri hendi, og eru bundnir á það 2 bakþræðirn- ir fyrstu, einn af hvoru efsta og neðsta skafti, og bundnir á mið- skaftið og eru þeir kallaðir undir- og yfirfetaþræðir. Svo eru tekn- ir tveir næstu yfir- og undirfetaþræðir, og kapmeldir við skaftið með hafaldinu. Síðan er látið ganga þar til búið er að kapmella alla bakþræðina við skaftið, en fyrri þráðurinn á efsta skaftinu heitir stelend og segir hann til hvort rétt er eða rangt; ef hann kemur ekki á eftir seinna þræðinum er ekki rétt. Nú er búið að gera fyrir og er þá jafnað svo ekki standist á fetarnir; þá er tekið band úr seigu efni og bundið við lokuþollinn hægra megin, og fitjaðir fjórir þræð- ir i senn yfir allan vefinn, til vinstri handar, þar til hann er allur fitjaður, er stillir varp og skörð; þeir (þ.e. bandendarnir) eru bundnir við lokuþollana, sinn endi um hvorn; á fyrirgarnið kemur skil, í það er látið mjótt skaft og það látið vera nærri niður við skilfjöl; svo eru látnar meiðmar í áslokunum á skilfjölinni hjá lokuþollunum. Svo er garninu óskift í baki upp á undir- og yfirfeta, sem aðgreinast með skili, og hver skilpartur kljáður niður og bundinn niður með steinum. Svo er tekið margfalt band og heft laust yfir fjóra þræði, 2 úr hverjum feta þar sem þeir koma saman, yfir vefinn allan, svo ekki séu skörð í; kvarðinn er tekinn úr, og nú er tekinn snakkurinn og farið að vefa, og dregið í skilið frá hægri til vinstri handar, og vefturinn færður upp að í’ifnum með hrælnum. Síðan er skaftið lát- ið upp á meiðmina vinstra megin, og hrældur vefturinn með hræln- um upp að rifnum og haldið liðlega í jaðarinn með vinstri hendi, en hrælt með hægri að jaðrinum hægra megin, og hinn endinn á
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.