Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Qupperneq 58
58
6311. 19/6
6312. %
6313. 29/6
6314 a-b. a/,
6315. 4/7
6316. 7/7
Þessir síðasttöldu gripir eru frá kirkjunni í Álftár-
tungu á Mýrum.
Tiglaleppar einir, prjónaðir úr hvítu ullarbandi með rós
á miðju og 3 krossum á hvorri totu með ýrnsum litum
og »slyngdir« á jöðrum umhverfis; nýir. L. 23,5 cm.,
br. 9,5 cm.
Séra Kjartan Helgason, Hruna: Altarissteinn (?) úr por-
phyr, dökkgrænn með ljósgrænum dröfnum í, ferhyrnd-
ur, 1. 7,9 cm., br. 4,8 cm., þykt 2 cm., flatur annars-
vegar, slípaður, en ávalur og nær óslípaður hinsvegar.
Fundinn í Hruna. Hafl þetta verið altarissteinn, hefir
hann að sjálfsögðu verið í tréumgjörð eða greyptur í
altarið, en hann er helzt til lítill.
Skarbítm úr kopar; húsið ferhyrnt, gárótt að ofan;
fætur undir og broddur fram úr. Virðist íslenzkur og
frá 18. öld seint eða fyrri hluta 19. aldar. L. 13,6 cm.
Skdlavog úr látúni, vogarstöngin 20,2 cm. að lengd og
má leggja hana saman á tveim stöðum. Hvor skál
hangir í 3 keðjum, er sameinast í lítilli kringlu uppi við
stöngina; þverm. skálanna er um 10 cm. og dýptin3,3
cm. Sbr. nr. 3084 og 6404 í safninu; ennfremur 0.
Montelius, Svenska fornsaker nr. 642 og Gr. Gustafsson
Norges Oldtid, fig. 542. — Vog þessari fylgir metaskur
með venjulegri gerð, sbr. nr. 3085, 3101, 3675 og 5469.
Vegur askurinn sjálfur 8 lóð og eru í honum nú 7 met,
munu hafa verið 8 og vantar hið minsta; metin eru
skálmynduð og niðurmjókkandi, vega 4 1., 2 1., 1 1.
Va 1-. V* !•) Vs l-» Vi6 1- °g mun því það er glatast hefir
hafa verið '/u 1. líka og ekki verið skálmyndað
heldur slétt, þá hefir metaskurinn með lóðunum öllum
vegið 16 lóð. — Nú er hann 230 gr. — Úr Húna-
vatnssýslu.
BreTcán ofið úr ull, röndótt, bekkjótt og tent, með
svörtura, rauðum og bláum lit, tvídúkað, saumað saman
eftir miðju, 1. 177 cm., br. 122 cm. Ofið í Hellnatúni
um 1880.
Séra Jón Jónsson prófastur, Stafafelli: Reizlulóð úr
steini, blágrýti, flatkúlumyndað og sporöskjulagað, slétt
utan og lábarið, 1. 13,5 cm., br. 11 cm. og þ. 6,5 cm.,
þyngd 1564 gr. I annan enda hefir verið fest með blýi
járnkeng, er nú er af. Utan í röndina eru smáholur
högnar og á báðum hliðum er höggnir sporbaugar;