Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Qupperneq 62
62
er Komenn fyrer eins manns Synd yfir alla menn, — fram-
haldið er á hægra væng og á hann máluð krossfest-
ingin: So er og komed fyrer eins Riettlæte, Lijfs
Riettlæteð yfir alla menn. Utan á vinstri væng er
máluð mynd af Móises og hægra af Kristi, og undir
er letrað: Lögmaled er fyrer Moisen utgiefed — Enn
Nad og sannleike er fyrer Jesum Xtum Ordenn. Uppi
' yfir miðtöflunni er dálítil brík (nú laus frá) með út-
skurði, og verður hæðin alls 123,5 em, en breidd mið
töflunnar 87 cm. — Myndirnar og taflan öll virðist ís-
lenzkt verk; gefandinn er Lauritz klausturhaldari
Scheving, sem bjó á Urðum nokkur ár, en frá kirkj-
unni þar er taflan; hennar er getið þar í byskupsvisi-
tatiu 1791. Nr. 6031, altaristafla frá Holti í Fljótum,
er sýnilega máluð af sama manni og þeim er þessa
heflr málað, og er sú með ártali 1782; eru líkur til að
þær séu málaðar af Jóni raálara Hallgrímssyni frá
Kasthvammi í Laxárdal, afabróður Asgríms málara
Gíslasonar; eftir Jón er nr. 4266, altaristafla frá
Grenjaðarstað með ártalinu 1766.
6337. 26/7 Sigtryggur Jónsson kaupmaður á Akureyri: Járnofn,
með þeirri gerð, er nefnist »bilægger« á dönsku, þareð
lagt var í þá að aftanverðu og úr öðru herbergi en
þeir voru í. Ofn þessi er að hæð 63 cm., dýpt 52,
br. 35. Yfirplatan er slétt; undirplatan stendur nokk-
uð framfyrir og hefir máske í fyrstu tilheyrt öðrum
ofni. A hliðum eru laglegar upphleyptar myndir, blóm-
skraut í skelstíl; neðst á framhlið er letrað FOSSUM
1766, er sýnir uppruna og aldur ofnsins; — Fossheim-
ur (Fossum) er skamt frá Skíðunni (Skien); þar var
stálsteypa. Frá Akureyri. Sbr. nr. 6247.
6338. Vs Grenivíkurkirkja: Kertaformi úr járni, einfaldur, virð-
isst hafa verið tinaður; er nú mjög ryðtekinn. A neðri
enda er oddur, en gat niður úr og heflr rakið gengið
út um það; á efri enda er skál (þvermál 8 cm.) um
barminn og eru skörð í barma hennar; heflr verið lögð
í þau spýta eða teinn, sem rakinu heflr verið fest um. A
efri enda er og handarhald. Lengd 46,5 cm., kertin orðið
16” (42 cm.) að lengd, þvermál um neðri enda 3,4 cm.,
en efri 3,9 cm. og þvermál kertanna heflr orðið aðeins
2 mm. minna; — neðri endi kertanna verður í efri
enda formans. Formi þessi hefir verið hafður fyrrum