Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Blaðsíða 69
69
6373. “/n
6374. —
6375. —
6376. —
6377. —
6378. —
6379. —
6380. 18/9
öllu leyti grennri en hinar fyrtöldu; ártalslaus, en virð-
ist vera álíka gömul og hinar flestar, um 100 ára. —
Slíkar vogir hafa lagst niður síðan tíundarvogir urðu
almennar; þó eru þær notaðar enn sumstaðar hér á landi.
Sbr. ennfr. nr. 5929.
Sami: Hvalskutull úr járni, um 157 cm. að lengd, en
sprengikúluna, með broddi, vantar framan af. Krókarn-
ir eru 2 29 og 2 38 cm. að lengd; gildleikinn á lykkj
unni, sem sett er inn í byssuhlaupið og sem tauginni
er fest í, er 8 cm. (3”).
Sami: Vaðsteinn úr grágrýti, virðist lábarinn fjöru
steinn, 1. 22 cm. ummál 27—34 cm., skora er gerð í
hann á langveginn frá enda til enda, er lagt járn í
hana um steininn, snúið saman við báða enda og verða
lykkjur fyrir utan snúningana. I aðra lykkjuna er fest
123 cm. langri keðju, ineð lykkjum og sigurnagla á efri
enda. Sýnilega af hákarlavað.
Sami: Járnsakka, 1. 29,5 cm., ávöl, gildust um miðju,
ummál 12—17 cm.; göt á báðum endum. Af handfæri.
Útlend.
Sami: Hákarlahneif úr járni, sivöl járnstöng, 225 cm.
löng með handfangi, — sporbaugsmynduðu — á efri
enda, hvössum oddi á hinum og er sá endinn beygður
í krók. Nær á miðja hneifina er bundið taug, sem ann-
ar endinn er nú til af, fastur við.
Sami: BeykishefiU úr eik, 1. 104 cm., br. 11,5, þ. 9,5
cm. Við annan enda er fest fæti, 75 cm. háum. —
Tönnin er 8,8 cm að breidd og um 28 cm. að lengd;
klappi á.
Sami: Beykishefill úr hnotviði(?), lengd 89,5 cm., br. 11,5,
þ. 8,5 cm.; tönnin um 28 cm. að lengd og 9 að breidd,
klappalaus. Útskorinn fyrir framan holið og er þar
ártalið 1803. Fóturinn er af og hefillinn mjög skemdur.
Sami: Svigahnifur, um 47 cm. að lengd og 1,5 cm. að
br. nú, en virðist mjög slitinn. Eskisköft sívöl eru á
báðum endum.
Beykisáhöld þessi hafa tilheyrt að sögn Niels Nic-
olay Bryde beyki, síðar verzlunarstjóra og kaupmanni,
afa gefandans, hins núverandi verzlunareiganda, Her-
luf Bryde.
Snceldusnúður úr beini, kast af hnútu, laglega útskor-