Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Qupperneq 96
96
6479. 12/8
6480. —
6481 a-b.
6482. 17/6
6483. «/„
6484. —
Bók, skrifuð: »Þeir þriaatiju heil0gu Fædingar-psalmar,
ordtir af þeirn fröma og Gud hrædda kieni mani Saal.
Siera Gunlaugie Snorrasini. Þrikt aa hoolum i hialta
Ðal. anno 1751. Skrifader ad niju. 1829«. Titilblað
og margir upphafsstafir vel dregnir með litum og skrift-
in öll er all-falleg; 92 tölus. blaðsíður auk titilblaðs.
Stærð 16 X 10)5 cm.; laus upp úr bandi, sem er lélegt,
slétt sauðskinnsband, frá miðri síðustu öld.
Bók, prentuð: »Harmonia evangelica. Þad Er Gud-
spiallana Samhliodan« o. s. frv. 2. útg. »Þrickt aa
Hoolum i Hialltadal, Af Halldore Erikssyne, Anno 1749«.
Laus úr bandi og all-mjög rotin. Alskinnsband með
laglega pressuðu verki; bekk frammeð brúnunum og
þar í árt. 1731. Ein látúnsspensl á miðju.
Lok og botn af öskjum, útskorin, smíðuð úr bæki, kringl-
ótt, þverm. loksins 19,8 cm., botnsins 18,6 cm.; þykt
botnsins 0,6 cm., loksins 0,7 cm. Á miðju lokinu er
kringla með skipaskurði og hafa verið sett 7 smátyppi i;
umhverfis er höfðaleturslína: anre Þrosetisn sno a es
(þ. e. Arni Þorsteinsson á es[kjurnar]. Innan á lokið
er skorið ANNO 17ol4 (þ. e. anno 1714). Neðan á
botninn eru krotaðir hringar með ýmsu móti. Frá
Ragnheiðarstöðum í Flóa.
Neftóbaksbaukur úr rostungstönn, silfurbúinn, en vantar
nú bæði tappann og töppina. Hann er að stærð og
lögun svipaður kríueggi, þverm. 3,5 cm., hæð með
stútnum 5,4 cm. Stúturinn er úr silfri, 1,2 cm. að
lengd, 0,4 cm. að þverm.; ganga 4 silfurblöð, grafin, frá
honum niður á baukinn, og snúrur hafa gengið niður
undir töppina frá 2 þeirra, greyptar inn í baukinn, en
fyrir neðan hin 2 hafa beggja vegna á baukiun verið
negldar smákringlur úr silfri, grafnar, og stendur Ch. P.
á annari en DA (þ. e. dóttir d) á hinni; þær eru 2,1
cm. að þverm. Baukur þessi hefir að sögn lengi fylgt
Hákonarstaðaætt á Jökuldal.
Eyjólfur Gíslason, trésmiður i Reykjavík: Ofnplata,
slétt beggja vegna, ferhyrnd og rétthyrnd, stærð 65,5
X61 cm.; 54,5 cm. breitt vik 5 cm. inn í aðra breiðu
röndina með bogmynduðum hornum og upp af endum
þess göt í gegnum plötuna. Ur gömlu húsi á Vesturgötu.
Sami: Ofnplata, ferhyrnd og rétthyrnd, hæð 85 cm.,
br. 63,5 cm. með yztu brúnum. Á plötunni er skjaldar-