Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Qupperneq 101
101
ur sökum spanskgrænu. Fundinn uppi á fjalli í nánd
við Botn í Geirþjófsfirði.
6503. “/s Ólafur Pétursson, trésmiður á Þingeyri við Dýrafjörð:
Smáhnífur úr járni, líklega mathnífur, með silfurhólk
á endanum, laglega gröfnum. Lengd hólksins er 2,9
cm., frá honum að blaðinu er nær sívalur tangi, um
4,5 cm. að lengd, 0,6—0,8 cm. að þverm. Blaðið er
mjög ryðbrunnið, um 8,3 ctn. að lengd nú, og 1,2 mest
að breidd, 0,2 að þykt. Jarðfundinn.
6504. 12/8 Séra Sigtryggur Guðlaugsson á Núpi í Dýrafirði: Svift
úr eiri, samanbeygð þynna; hefir verið fest á leður
með 2 nöglum og er sá við buginn eftir og leðurbútur
þar á milli, en hinn hefir verið í gegnum endana og
hefir brotnað af öðrum endanum um gatið. L. 9,2 cm.,
br. 1,3 cm. Utan á annars vegar er laglega grafið
með fornum rómverskum upphafstöfum ILS | SON, end-
ir föðurnafns eigandans og »son«. — Gljáandi spansk-
grænuhúð ér á sviftinni; fanst hún skamt frá Skógum
í Fnjóskadal fyrir um 20 árum. Er frá miðöldum.
6505. 26/s Jóhann Asgeirsson, Skjaldfönn: Lyklasylgja, steypt úr
kopar, kringlótt, þverm. 5,8 cm., með krossí í miðju,
eyra upp af og smáspaða með gati niður af. Áletrun
er grafin beggja vegna með róm. upphafsstafaletri,
þessi vísa, sem oft var á lyklasylgjum: HLIOTE SV
HIN HIRA FRV SEM HRINGIN || BER A SIDV |
EILTF (þ. e. eilíft) LID | AF EINGLG SM (þ. e. eingla
smið; botninn er: og œvinlega blíðu). L. 7,8 cm., þ. 0,3
cm. — Fundin fyrir framan tún á Skjaldfönn 1911.
6506. 27/8 Steinunn Jónsdóttir, Skjaldfönn: Fjöl úr bæki ferhyrnd,
1. 16,2 cm., br. 4,5 cm., þ. 0,6 cm. Annarsvegar er
skorið á hana í 2 línum höfðaletursstafrof og hefir það
gjört faðir gefandans, Jón Níelsson á Grænavatni við
Steingrímsfjörð, bróðir séra Sveins og Daða fróða.
6507. 28/8 Gjarðarhringja steypt úr kopar, með tvöföldu miðbandi
og þorni í; vel gerð, efnismikil (þyngd 170 gr.), 1. um
8 cm., br. 6—7,1 cm., þ. um o,7 cm.; laglega grafin og
með áletrun: RANVEIG IoS (þ. e. IONS?) DOTTER
ANN (sic) 1683; 8 er slitið, og verður ekki vel séð
hvort verið hafi 8 eða 3. — Frá Hvalsá við Stein-
grímsfjörð.
6508. 12/9 Solveig Eymundsson, Reykjavík: Stundaglas lítið með
venjulegri lögun í tréumgjörð, þannig að rendar kringl-