Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Síða 107
107
6527.
6528.
6529.
6530.
6531.
skjöldur, með upphafsstöfunum I. P. á, hallast upp að
stalli, sem ker stendur á. Frá byrjun síðustu aldar. —
Fanst nú í Fúlutjörn hér inni hjá Kirkjusandi.
6/u Hannes Stephensen verzlunarstjóri á Bíldudal: Fjöl úr
furu með gagnskornu verki, greinar, sem ganga út frá
miðju. L. 121 cm., br. 24 cm., þ. 2,7 cm.; í neðri rönd
er gróp. Sýnilega ísl. verk, líklega frá 17. öld. Hefir
máske verið í kirkju.
8/n Séra Einar Friðgeirsson, Borg á Mýrum: Kinga úr
látúni, mjög eydd orðin og vantar mikið af annari plöt-
unni; hefir hún verið með rós grafinni á, en á hinni
heilu er i h s (þ. e. Jesús). Þvermál 3,5 cm.; þyktin
hefir verið um 0,7 cm.; er að eins þriðjungur milli-
hringsins eftir og hefir verið fest í hann keðju; hlekkirn-
ir eru eins og 8 í lögun. Smáprjónn úr látúni fylgir,
fanst með; hefir hann máske verið til þess að fssta ásig
kingunni einhvern veginn. Varla yngri en frá 15. öld.
Fanst í jörðu á Langárfossi árið 1909. Sbr. ennfremur
nr. 230, 247, 315, 994, 4135. Kingurnar voru skraut-
gripir, en jafnframt verndarpripir, af því er markað
var á þær.
9/u Stefán Eiríksson myndskeri, Reykjavík: Kúmfjöl, út-
skorin úr furu og máluð með svörtum farfa að mestu,
rauð strik við randir og rauður hringur á miðju, að
framan. Laglega skornar, lágt upphleyptar greinar að
fraroan, en að aftan upphafsstafirnir H. I. S. og G. M.
D., og ártalið 1650 á milli, en fyrir ofan þessi vísu-
helmingur: hædstur drottin himnum á, heirdu heidni myna
og fyrir neðan er hinn helmingurinn: settu mini hvylu
hia, heilaga eingla þyna. L. 108,5 cm., br. 15,5 cm., þ.
1,6 cm. Virðist varla eldri en hálfrar aldar og því
ekki að marka ártalið.
“/u Öskjur úr bæki, útskornar að utan, hringar, er grípa
hverjir í aðra eins og í festi, og á loki, i h s laglega
samandregið á því miðju og 6 cm. breiður rósastrengur
umhverfis. Þær eru kringlóttar, undiraskjan er 30—
30,5 cm. að þvermáli og 9,5 cm. að hæð. Að líkindum
frá 17. öld. — Blár farfi hefir verið settur á að utan.
Vestan frá Reykhólum.
— Rúmfjöl úr furu. 1. 114,2 cm., br. 14 cm., þ. 1,5 cm.;
útskorin að framan, hringur á miðju og einfaldir
rósastrengir út frá honum til beggja enda. Innan í
14*