Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Side 109
109
6536. 17/n
6537. 20/u
6538. —
6539. —
6540. —
6541. —
Skarbítur úr járni sléttur ogeinfaldur; broddur frara úr,
3.5 cm. að lengd, skarhúsið nær hálfkringlumyndað, 1.
4.5 cm., br. 3 og dýpt 2,2 cm. Allur er skarinn 17,5
cm. að lengd og er þolinmóðurinn 8 cm. frá tangaend-
um. Augun fremur smá. Frá sömu kirkju og nr.
6533-35.
Hökull úr rauðu flosi, fóðraður með rauðleitu hörlérefti;
1. að aftan 117 cm., br. 96 cm., hálfkringlóttur að neð-
an; 1. að framan 78,5 cm., br. efst 75 cm., en hann
mjókkar niður eftir. A baki er kross úr rósofnum, 4
cm. breiðum silfurvírsborða, 1. 50,5 á langálmunni, en
þverálman er 41,5 cm. Hökullinn er með víðri höfuð-
smótt, en saumaður saman á herðum og brjósti.
Hökull úr rauðu flosi, rósþryktu, fóðraður með rauðleitu
ullarvaðmáli; 1. að aftan 83 cm., 60 cm. um bakið ofan-
til og er þar kringt úr, en 73 cm. neðst; hornin boga-
mynduð og beinn fyrir að neðan; 1. að framan 75cm.,
br. efst 65 cm., en hann gengur að sér og er óreglu-
lega boginn fyrir neðri endann. Á baki er kross úr
rósofnum 3,5 cm. breiðum, gull- og silki ofnum borða,
1. 45 cm. á langálmunni, 28 cm. á þverálmu. Krækt
saman á vinstri öxl með þrennum litlum krókapörum
úr látúnsvír.
Altarisklœði úr rauðu flosi, samsett af þrem dúkum, er
miðdúkurinn, sem heflr verið fyrir framhlið altarisins,
úr samskonar efni og er í höklinum nr. 6538, 107 cm.
að hæð og 102 cm. að breidd. Silfurvírsknipplingar
eru saumaðir yflr samskeytin og jaðarinn að neðan.
Við báða enda þessa aðalklæðis eru festir dúkar úr
samskonar efni og er í höklinum nr. 6537, jafnháir og
miðklæðið, en 55 cm. að breidd, og hafa þessir væng-
ir klætt altarisgaflana. Fóðrið er úr gisnum og ólituð
um hörstriga.
Altarisdúkur úr samskonar flosi og er i höklinum nr.
6538 og altarisklæðinu nr. 6539, miðklæðinu; 1. 108
cm. (sbr. breidd miðklæðisins í nr. 6539); br. 54 cm.
Til beggja euda og að frarnan eru siifurvírsknipplingar
og rautt silkikögur. Fóðrað með rósþryktu lérefti, sem
nú er upplitað orðið.
Altarisdúkur úr bláu vaðmáli, sem þrykt er hvítum
blómum og er það efni sjaldséð. L. 120 cm., br. 55
cm. Á báðum endum og að framan eru 3 kögur, rauð