Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1937, Page 174
Ornefni á Biskupstungna-afrjetti.
Safnað af Þorsteini Bjarnasyni frá Háholti.
Sandá (1) aðskilur byggðarlönd og afrjettar. Sandá fellur í
Hvítá (2) ; þar sem árnar koma saman, myndast tangi, er heitir
Þjófanes (3), öðru nafni Músarnes (4). Gömul sögn er, að skólapiltar
frá Hólum hafi lagzt út í Þjófadal, en verið drepnir í Þjófanesi.
Inn-með Hvítá eru Hjeðinsbrekkur (5). Norðan Sandár er Sultar-
kriki (6). Mjög stórt og hátt fjall er þar inn-með Hvítá, er heitir
Bláfell (7) ; hæsti tindur þess heitir Bergþórskista (8). Undir suður-
horni Bláfells er Fremsta-ver (9). Sunnan-við verið við Hvítá er
Grjótártunga (10). Inn-með Bláfelli að austan er Miðver (11); þar
nálægt er hólmi í Hvítá, er heitir Bláfellshólmi (12). Niður austur-
hlið Bláfells renna Sniðbjargargil (13) og Illagil (14). Tæpistígur
(15) er inn-með Bláfelli; við suðurenda hans er Hallspyttur (16).
Norðan-undir Bláfelli er Lambafell (17) og Lambafellsver (18) ; í
verinu eru upptök Lambafellskvíslar (19) ; rennur hún í Hvítá. Foss
er þar í Hvítá, er nefnist Ábóti (20). Norður frá Lambafelli er Horn
(21). Jökulkrókur (22) er milli Langjökuls og Hvítárvatns (23).
Framan-við krókinn er Skálpanes (24). Vestan-við Bláfell er Geld-
ingafell (25) ; milli þess og Bláfells er Bláfellsháls (26). Niður Blá-
fell að vestan renna Valagil (27) og Illagil (28). Austan-við gilin,
niðri á sljettlendi, eru Skálar (29). Fram-af Skálum eru Brunna-
rkógarlækir (30) og Brunnaskógar (31), Stóra-Grjótá (32) og Litla-
Grjótá (33) ; þar eru og Rótamannagil (34) og Kattarhryggur (35).
í Langjökli er Skriðufell (36), öðru nafni Sölkufell (37). Skriðjöklar
ganga báðu megin niður með fellinu ofan í Hvítárvatn, og er mjög
illt að komast í fellið; þó rennur stundum sauðfje í fellið og er þá í
svelti. Útsuður frá Jökulkrók eru mjög háir tindar; heita þeir Jarl-
hettur (38) ; eru þær undir suðurrönd Langjökuls. Enn fremur er þar
við jökulinn stórt vatn; heitir það Hagavatn (39); við vatnið er
Hagafell (40), en austan-við vatnið eru Buðlungabrekkur (41).
Skamt frá þeim er Einifell (42). Austur frá Jarlhettum er Sandvatn