Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1983, Blaðsíða 13
KUMLATEIGUR í HRÍFUNESI í SKAFTÁRTUNGU I
17
8. mynd. Blýmet úr karlmannskumlinu frá 1981. Ljósm.: Halldóra Ásgeirsdóttir.
2. Jaspismolar fjórir, rauðir að lit, til að slá eld við með stálinu. Gætu
allir verið úr sama steininum í upphafi. — Einn er stærstur, mesta haf 3,6
sm, hinir mun minni og líkir að stærð, mesta stærð 2,5, 2,4 og 2,3 sm.
3. Lítill egglaga blágrýtissteinn, mesta stærð 1,9 sm. Sennilegast eins
konar verndargripur.
4. Jaspismoli, rauður að lit, til að slá við eld. Mesta stærð 1,7 sm.
5. Blýmet, kringlótt, þvermál 1,9 sm, þykkt 1 sm. Annars vegar er
ryðguð lítil járnarða á metið en hins vegar er kringlótt úrtak, líkt og þar
hafi verið felld í plata, og þar gat undir, sem gæti hafa verið gegnum
metið upphaflega. Þyngd nú 22,82 gr.
6. Blýplata með látúnsræmu umhverfis annars vegar, hefur líklegast
verið svo hins vegar einnig. L. 2,0 sm, br. um 1,1 sm og þ. um 0,6 sm.
Gæti verið eins konar met, en þó virðist þetta vera partur af stærri hlut.
Þyngd 4,57 gr.
Þessir fjórir hlutir voru saman í einum klumpi, svo sem fyrr segir, og
virðist því næst að ætla, að þetta hafi verið í pússi mannsins. En eins og
kemur fram í lýsingu Kristjáns Eldjárns á kumlinu voru bein og haugfé
2