Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1983, Blaðsíða 169
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1983
Starfslið.
Á árinu varð sú aukning á fbstu starfsliði safnsins, að ráðin var
skrifstofustúlka í hálft starf, einkum til að annast gjaldkera- og bók-
haldsstörf, að svo miklu leyti sem þau eru unnin af safninu, og einnig
var ráðinn húsvörður. í starf gjaldkera var ráðin Hugrún Valgarðsdótt-
ir, en Geir Björnsson rafvirki í starf húsvarðar, en hann hefur verið raf-
virki hússins lengi. — Var þessi starfsmannaaukning orðin mjög brýn.
Æ meiri og fjölþættari greiðslur fara um -hendur safnsins, bæði í þess
þágu og annarra, ekki sízt byggðasafnanna, og brýnt er, að umhirða og
ástand húss og umhverfi þess sé sem óaðfinnanlegast, ekki sízt þar sem
hingað í safnið kemur mikill fjöldi safngesta og að stórum hluta útlend-
ingar.
Almennt um safnstörfni.
Sýningar og aðsókn: í safnið komu á árinu 43.610 manns, og mun það
vera metaðsókn á einu ári. Enda var meira um ferðamenn en oftast
áður.
Skólaheimsóknir voru með sama hætti og árið áður, en þær annast
nú tveir safnkennarar á vegum Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur, Sólveig
Georgsdóttir og Bryndís Sverrisdóttir.
Safnið stóð fyrir tveimur sýningum í Bogasal. Hin fyrri nefndist: Ur
fórum safnsins og stóð frá 7. maí til 20. september. Voru þar sýndir
ýmsir gripir, sem safninu hafa borizt síðustu árin, einkum þó myndir
þær, sem keyptar voru frá Englandi á árinu 1982 og brúðarbekkurinn
frá 1739, sem keyptur var frá Noregi og frá var skýrt í síðustu skýrslu.
Gefin var út einföld skrá um sýninguna. Vakti sýningin mikla athygli
og komu á hana 7.209 gestir.
Hin sýningin nefndist ísland á gömlum landabréfum og stóð frá 15.
október til 27. nóvember. Var hún haldin í samvinnu við Seðlabanka
íslands og Félagið Germaníu, en meginefni hennar var gömul landakort
úr eigu Oswald Dreyer-Eimbcke konsúls í Hamborg og Seðlabanka ís-