Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1983, Blaðsíða 14
18
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
allt mjög hrært saman og virðist augljóst, að kumlið hafí verið rænt
mjög snemma og þó öllu rótað í því í leit að fémæti. Því gætu hlutir
þeir, sem greint er frá hér á eftir, einnig hafa verið í pússi mannsins í
upphafi.
7. Blýmoli eða teinn, ferstrendur og eins konar plata á öðrum enda.
L. 5,3 sm, þyngd 11,32 gr. — Gæti helzt hafa verið efni í met, sem
höggva átti niður.
8. Met (?) úr blýi, ferstrent með nokkrum ryðlit á. L. 1,9 sm, þyngd
8,73 gr.
9. Blýplata, óreglulega ferhyrnd, stærð 1,5 x 1,3 sm, þyhgd 3,41 gr.
10. Blýmoli, 1. 1,6 sm, þyngd 1,98 gr. — Þessir tveir síðustu hlutir hafa
mjög svipaða áferð og eru talsvert étnir, virðast tæplega vera met.
11. Blýmoli, ef til vill met, 1. 1 sm, þyngd 2,86 gr.
Greinilega hefur Kristján Eldjárn talið alla þessa blýmola met, sjá hér
á undan.
12. Járnspöng, nú brotin, hnoðnegld við tré og loða ryðmettaðar leifar
af trénu við annan endann. Mesta stærð 5,5 sm.
13. Tréjlís með hnoðnagla, þykktin á trénu 0,7 sm, mesta lengd nú
6,7 sm.
Að auki voru tekin ýmis sýnishorn af jarðvegi úr grafarfyllingunni til
greiningar.
Haugféð sem heild kemur á engan hátt á óvart. Eldfæri eru algeng,
þ.e.a.s. tinna eða jaspis, í kumlum, en sjálf eldstálin miklu færri, sem
kann að nokkru leyti að stafa af því að þau eru efnislítil og ryðga fljótt
í gegn og þola því illa hnjask (sjá Kuml og haugfé, bls. 347—48, og
Árbók 1965, bls. 39, 15. mynd). Blýmet eru einnig meðal algengari
hluta í kumlum (Kuml og haugfé, bls. 355—57) og virðast fremur vera
í kumlum karla en kvenna. Er því líklegt að Hrífuneskumlið sé karl-
mannsgröf. Litla nýja vitneskju flytur þetta kuml okkur um grafsiði eða
haugfé. En góð viðbót er það við þann forða sem fyrir var.
Eins og ljóst er á afstöðumynd (fyrsta mynd) eru kumlin aðeins 80-100 m
frá gamla bæjarstæðinu í Hrífunesi. Varla er hægt að ímynda sér annað
en að þau hljóti að vera í túninu kringum þann bæ. Það væri þó algjör
undantekning, ef kumlateigur hefði verið gerður í túni, og þar að auki
svona örskammt frá bæ. Mér er ekki kunnugt um neitt dæmi slíks.