Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1983, Blaðsíða 173
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1983
177
áþekkan hinum fyrra, og hóf hann framleiðslu silfurgripa sem safnið
fær sinn hlut af til sölu í safnbúð.
Frœðirit safnmanna. Á árinu komu út eftirtaldar fræðilegar ritgerðir og
rit starfsmanna safnsins:
Árni Björnsson: í jólaskapi. Bók um jólahald og jólasiði á fyrri tíð.
Pálsmessa og kyndilmessa. Árbók 1982.
Elsa E. Guðjónsson: „Um íslenskan listvefnað fyrr á öldum,“ Lesbók
Morgunblaðsins, 58: 4. og 5. tbl..
„íslenskur vefstaður og vefnaður fyrr á öldum," Kennsluleiðbeiningar með
Landnámi.
„Islandske broderier og brodcrsker i tniddelalderen," Förandringar i kvinnors
villkor under medeltiden. Uppsatser framlagda vid ett kvinnohistoriskt
symposium i Skálholt, Island, 22.-25. juni 1981. Rit Sagnfræðistofn-
unar 9.
„íslensk brúða 1766,“ Árbók 1982.
„Refilsaumur og augnsaumur, “ Nordens Husflidsforbund. XVII Nordiske
Husflidsting. Tromso 1,—3. juli 1980.
lcelandic Embroidery. Domestic Embroideries in the National Museum of Ice-
land. (2. útg. endurskoðuð.)
Notes on Knitting in Iceland. (4. útg. endurskoðuð.)
„Lopi Knitting,“ Hook & Needle. The Edinburgh Knitting & Crochet
Guild, 3: 3—6.
„María himnadrottning. Kápumynd Norrænna jóla,“ Norræn jól 1983.
Guðmundur Ólafsson: Fornleifaskráning. Skipulagsmál höfuðborgar-
svæðisins.
Ritstj.: Hus, gdrd och bebyggelse. Föredrag frán det XVI nordiska arkeo-
logmötet, Island 1982.
Hallgerður Gísladóttir (með Árna Hjartarsyni): Skollhólahellir. Árbók
1982.
Lilja Árnadóttir: Anker Lund og altaristöflur hans á íslandi. Árbók 1982.
Þór Magnússon: Norrænustrandið 1908. Húnvetningur 1982.
Silfursmíðar Helga Þórðarsonar. Hugur og hönd 1983.
í sambandi við ritið Hus, gárd och bebyggelse má geta þess, að þetta
er fyrsta ritið sem eitthvað kveður að, sem Þjóðminjasafnið telst útgef-
andi að. Hin fyrri rit safnsins hafa einkum verið sýningarskrár og safn-
bæklingar auk korta, en óskandi væri, að safninu tækist að gefa út slík
meiri háttar rit þegar svo ber undir.
12