Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1983, Blaðsíða 30
34
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
hraunið við Hrífuneshólma og Landbrotshraunið talin vera frá 934
A.D. en ártalið haft innan sviga vegna þeirra fyrirvara er hér hafa verið
raktir. Sé Álftavershraunið ekki reiknað með, lækkar rúmmálstala
hraunanna um 2 km3, úr 9.3 km3 í 7.3 km3, miðað við þykktartölur
Þorvaldar Thoroddsen. Jón Jónsson (1979, 1980, 1983) telur hins vegar
að Landbrotshraunið tilheyri ekki þessu gosi og sé miklu eldra (>5200
ára). Höfuðröksemdir hans fyrir svo háum aldri eru C14 greiningar á
sýnum úr jarðvegi við norðurjaðar Landbrotshrauns (snið við Ytri-
Dalbæ). Jón Jónsson telur að jarðvegurinn, sem sýnin eru tekin úr, hafi
myndast ofan á hrauninu á þessum stað en aðrir, sem hafa skoðað þetta
snið, eru honum ekki sammála (Guðrún Larsen 1979, 1980, Sigurður
Þórarinsson 1982, Haukur Jóhannesson og Kristján Sæmundsson pers.
uppl. 1982) og telja að ekki sé hægt að draga slíka ályktun af þessum
greiningum um aldur hraunsins.
Önnur gjóskulög
Gjóskulög yngri en E-1 koma ekki beinlínis við sögu kumlanna við
Hrífunes, a.m.k. ekki að svo stöddu. Um þessi gjóskulög hefur verið
fjallað í ýmsum greinum og ritgerðum og vísast til þeirra (t.d. Sigurður
Þórarinsson 1958, 1975; Guðrún Larsen 1979, 1981). Rétt er að fram
komi að öll gjóskulög frá sögulegum tíma, sem finnast í Hrífunes-
hólma, hafa verið efnagreind til að fá staðfestingu á uppruna þeirra
(Guðrún Larsen 1981) og eru merkingar á gjóskulögum á myndum í
kafla III í samræmi við þær niðurstöður.
Eldri gjóskulög en Landnámslag koma að því leyti við sögu kuml-
anna að grafirnar voru teknar í gegnum nokkur þeirra. Mest þeirra er
þykkt, svart gjóskulag sem nefnt hefur verið E-2 (Sigurður Þórarinsson
1958) og verður því nafni haldið hér þótt ekki sé vitað með vissu hvort
það er ættað úr Eldgjá. Aldur þess er ekki þekktur en hér er talið fullvíst
að það sé frá forsögulegum tíma.
III. Kumlin
Þrjú kuml voru grafin upp í teignum við Hrífunes haustin 1981 og
1982. Hér á eftir verður gerð grein fyrir afstöðu hvers þeirra til þekktra
gjóskulaga og reynt að draga ályktanir um aldurinn út frá þeim for-
sendum sem skýrðar eru í kafla II.
Kuml grafið upp 1981
Að beiðni dr. Kristjáns Eldjárns var farið í Hrífunes þann 4. október
1981 til að kanna hvort gjóskulög gætu skorið úr um aldur forn-